Lífið

Æfir eins og strákur

Leikkonan tekur vel á því í ræktinni tvisvar í viku.
Leikkonan tekur vel á því í ræktinni tvisvar í viku. nordicphotos/getty
Scarlett Johansson segist æfa eins og strákur þegar hún skellir sér í ræktina.

„Ég fer tvisvar í viku í ræktina en ef ég er að undirbúa mig fyrir hlutverk fer ég stundum á hverjum degi. Ég er ekki hrifin af brennsluæfingum. Mér finnst gott að lyfta lóðum og gera magaæfingar. Ef ég á að segja alveg eins og er þá æfi ég eins og strákur,“ sagði leikkonan í viðtali við tímaritið Elle.

Hin 28 ára Johansson farðar sig alltaf áður en hún fer út úr húsi. „Ég hef alltaf elskað augnskugga. Þegar ég var yngri farðaði móðir mín sig alltaf vel áður en hún fór út. Ég hef erft hennar venjur.“ Til að halda húðinni silkimjúkri og glansandi ber hún einnig á sig sítrónusafa.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×