Tíu slökustu sölubílarnir Finnur Thorlacius skrifar 9. janúar 2014 10:00 Acura ZDX seldist bíla verst.
Þó að pallbíllinn Ford F-150 hafi selst í yfir 700 þúsund eintökum í Bandaríkjunum í fyrra á það aldeilis ekki við ýmsar aðrar bílgerðir. Sumar þeirra virðist hreinlega ekki taka því að selja þarlendis þó svo íbúar þar séu þúsund sinnum fleiri en hér á landi. Í Bandaríkjunum í fyrra seldust um 2.000 sinnum fleiri bílar en á Íslandi. Bílavefurinn Autoblog hefur tekið saman lista þeirra 10 bíla sem þeim telst til að hafa selst bíla verst á síðasta ári. Miðast listinn við að enginn þeirra kosti yfir 100.000 dollara og að þeir hafi bæði verið í framleiðslu og sölu allt árið í fyrra. Svona er þessi óeftirsótti listi fyrir síðasta ár, með fjölda seldra bíla og þróun sölu frá árinu 2012.Acura ZDX: 361 (-53.4%)Mitsubishi Lancer Sportback: 682 (-2.8%)Mitsubishi i-MiEV: 1,029 (+75%)Nissan GT-R: 1,236 (+4%)Jaguar XK: 1,346 (-18%)Volvo C30: 1,361 (-51.9%)Subaru Tribeca: 1,598 (-23%)Volkswagen Golf R: 1,598 (-59%)Volvo S80: 1,935 (-41%)Cadillac Escalade EXT: 1,972 (+2%) Aðeins þrír af þessum bílum jók söluna frá fyrra ári en framleiðendur þeirra hljóta engu að síður að velta fyrir sér hvort ástæða sé til að halda sölu þeirra áfram. Nú þegar hefur verið ákveðið að hætta að selja 3 á þessum lista, Acura ZDX, Volvo C30 og Cadillac Escalade EXT. Taka þarf tillit til þess að ofurbíllinn Nissan GT-R kostar 99.590 dollara og líklega vænti Nissan ekki meiri sölu á bílnum en þetta. Bæði Volvo og Mitsubishi eiga tvo fulltrúa á listanum, en fyrirtækin tvö áttu það einmitt sammerkt að ganga frekar illa í sölu í fyrra. Acura ZDX er framleiddur af Honda.
Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Seðlabankinn lagði Þorstein Má Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent