
Guðni segir G2-snjallsímann marka upphaf margra nýjunga í notendaviðmóti.
„Þar má nefna KnockOn sem gerir notendum kleift að banka tvisvar á skjá símans til að vekja hann og SlideAside sem er ný leið til að vinna í mörgu í einu, einfaldlega með því að nota þrjá fingur til að flakka á milli forrita. Þá er ótalið GuestMode sem býr til gestaaðgang að símanum, ákveður hvað þar er hægt að gera og er tilvalinn fyrir börn og takmarkaðan aðgang þeirra að fyrirfram ákveðnum forritum,“ útskýrir Guðni.
Meðal annarra nýjunga í notendaviðmóti LG G2 er QuickRemote.
„QuickRemote leysir af allar fjarstýringar heimilisins, hvort sem það er fyrir sjónvarp, afruglara eða útvarp. G2 er með innbyggðan, innrauðan sendi sem getur lært á allar tegundir tækja og frá öllum framleiðendum,“ upplýsir Guðni.
G2-snjallsíminn er einnig hnappalaus á hliðum.
„Þess í stað eru hnapparnir fyrir miðju á baki símans þar sem vísifingur er alltaf laus. Það dregur úr líkum á að notendur missi síma sína úr höndunum,“ segir Guðni.
Umsögn gagnrýnanda Mobilsiden.dk: „LG G2 fær sex stjörnur af sex mögulegum.“

Skjár LG G2 er 5,2 tommu og í fullri háskerpu.
„Tæknin á bak við skjáinn skilar raunverulegri litum, meiri birtu og mun betri skerpu en skjáir samkeppnisaðila,“ segir Guðni.
Umsögn gagnrýnanda Theverge.com: „LG negldi það. Skjárinn er bjartur, skýr og nokkurn veginn allt sem þú vilt frá snjallsímaskjá.“
Stafrænar myndavélar kvaddar
LG G2 er útbúinn 13 MP-myndavél með „Optical Image Stabiliation“ eða fljótandi linsu.
„Fljótandi linsa er besta hristivörnin sem völ er á og skilar skýrari myndum við léleg birtuskilyrði eða hristing við myndatöku,“ útskýrir Guðni.
Hann segir myndbandsupptöku í LG G2 með því besta sem býðst í snjallsímum.
„G2 tekur myndbönd í 60 römmum á sekúndu og í fullri háskerpu í stað 30 ramma á sekúndu eins og gerist hjá flestum samkeppnisaðilum LG. Við það verða myndböndin miklum mun skýrari og eðlilegri á að horfa,“ segir Guðni.
Umsögn gagnrýnanda Thegadgeteer.com: „Myndavél G2 er það góð að þú getur skilið stafrænu myndavélina þína eftir heima fyrir fullt og allt.“

LG er í nánu samstarfi við fremsta örgjörvaframleiðanda heims: Qualcomm.
„G2 er fyrsti síminn til að nota nýjasta örgjörva Qualcomm, Snapdragon 800 2.3 gHz. Það þýðir að síminn hlýðir skipunum um leið og þær berast og án allra hnökra,“ útskýrir Guðni.
Umsögn gagnrýnanda Laptopmag.com: „LG G2 er hraðvirkasta Android-tæki sem sést hefur.“
Rafhlöðuending sem ekki hefur sést áður
Rafhlaða LG G2 er 3.000 mAh. Til að setja það í samhengi getur meðalsnjallsímanotandi notað G2 í allt að þrjá sólarhringa.
„Slík rafhlöðuending hefur ekki sést áður í snjallsíma og nýtist 4G-notendum einkar vel, þar sem 4G er orkufrekara en til dæmis 3G,“ útskýrir Guðni.
Umsögn Magnúsar T. Magnússonar, starfsmanns ELKO og notanda LG G2: „Ég náði að nota G2 í 63 klukkutíma á einni hleðslu og með töluverðri notkun.“
Aukahlutir
Með QuickWindow-hulstrum fyrir G2 er hægt að nálgast fjölda forrita, svo sem tónlistarspilarann, klukkuna og fleira í gegnum lítinn glugga framan á hulstrinu, án þess að opna hulstrið. Hulstrin fást í öllum regnbogans litum.
Sjá nánar á www.lgsimar.is/g2