Snjókorn falla í Reykjavík Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 30. janúar 2014 15:59 Allt er á kafi í snjó í Reykjavík. vísir/gva
Skjótt skipast veður í lofti. Nú snjóar á höfuðborgarsvæðinu en kuldaskil eru yfir suðvestanverðu landinu. Suðvestanlands kemur víðast til með að snjóa fram á kvöld, en síðan léttir til og frystir. Á undan skilunum er rigning og norðan- og norðvestanlands er hætt við að það geri flughálku þegar vætir á ísaða vegina, ekki síst á fjallvegum. Í tilkynningu frá Vegagerðinni er greint frá hálku og þoku á Sandskeiði og Hellisheiði. Annars eru flestir vegir greiðfærir á Suður- og Suðvesturlandi en eitthvað er um hálkubletti. Snjóþekja er á Reykjanesbraut, Grindavíkurvegi og á Suðurnesjum. Hálka eða hálkublettir eru víða á Vesturlandi. Snjóþekja og snjókoma er á Fróðárheiði og á Útnesvegi. Á Vestfjörðum er snjóþekja á Þröskuldum. Þæfingur er frá Bjarnafirði og í Reykjafjörð á Ströndum. Annars er hálka eða hálkublettir á flestum vegum. Hálka eða snjóþekja er á flestum vegum á Norðurlandi og sumsstaðar éljagangur. Flughálka er á Þverárfjalli, Vatnsskarði og í Skagafirði einnig frá Sauðárkrók að Hofsósi. Flughált er líka frá Tjörnesi að Kópaskeri. Á Austurlandi er snjóþekja, hálka eða hálkublettir á vegum og sumstaðar éljagangur. Greiðfært er frá Reyðarfirði suður um með ströndinni.
Veður Mest lesið Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Veður Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Veður Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Erlent Fleiri fréttir Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Sjá meira