Íslenski boltinn

Freyr: Vísir að kynslóðaskiptum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Freyr, til vinstri, og Ásmundur Haraldsson, aðstoðarþjálfari, á fundinum í dag.
Freyr, til vinstri, og Ásmundur Haraldsson, aðstoðarþjálfari, á fundinum í dag. Vísir/Stefán
Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari í knattspyrnu, segir að æfingamótið á Algarve í Portúgal sé íslenska landsliðinu afar mikilvægt.

Ísland hefur undanfarin ár tekið þátt í mótinu á Algarve sem er sótt af mörgum sterkustu landsliðum heims. Ísland er til að mynda í riðli með Evrópumeisturum Þýskalands, Noregi og Kína.

Freyr tilkynnti leikmannhóp sinn í dag en alls tekur hann 23 leikmenn með sér til Portúgals.

„Við lítum á mótið sem æfingamót og ætlum að reyna að skoða sem flesta leikmenn. Leikmenn okkar þurfa á reynslu að halda og við þurfum að skoða hvaða leikmenn skara fram úr í sínum stöðum,“ sagði Freyr við Vísi í dag.

Hann segir að hópurinn sé sá sterkasti sem honum hafi staðið til boða að þessu sinni.

„Við eigum þó inni leikmenn sem hafa verið í meiðslum, eins og Sif Atladóttur og HólmfríðiMagnúsdóttur. Þá eru Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir og Guðný Björk Óðinsdóttir að koma til baka úr krossbandsslitum sem eru góðar fréttir fyrir okkur.“

„Það eru vissulega fleiri leikmenn að banka á dyrnar en það sést á hópnum að þetta er ákveðinn vísir að kynslóðaskiptum í landsliðinu. Við erum með marga óreynda leikmenn.“

Alls eru fjórtán leikmenn sem spila á Íslandi í hópnum sem er það mesta í nokkur ár. „Það mun reyna á þessa ungu og óreyndu leikmenn,“ segir Freyr. „Þetta er þróun sem við getum ekki litið framhjá og skiptir máli að við bregðumst rétt við. Þessir leikmenn þurfa að fá tækifæri og svigrúm til að gera mistök.“

Freyr segir að mótið á Algarve skipti miklu máli fyrir hans lið. „Sérstaklega sem undirbúningur fyrir næstu verkefni. Það er stutt í næstu leiki í undankeppni HM - gegn Ísrael og Möltu í byrjun apríl - og við höfum lítið getað æft saman. Nú fáum við tíu daga saman sem er algjörlega ómetanlegt svo við getum mótað okkar leikfræði fyrir leikina í apríl.“


Tengdar fréttir

Ungt landslið til Algarve

Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari í knattspyrnu, tilkynnti í dag þá 23 leikmenn sem skipa íslenska landsliðið sem fer á æfingamótið í Algarve í næsta mánuði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×