Íslenski boltinn

Valur og Fylkir mætast í úrslitaleiknum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Stefán
Undanúrslitin í Reykjavíkurmóti kvenna í knattspyrnu fóru fram í Egilshöll í kvöld.

Valur vann 4-1 sigur á KR eftir að hafa verið marki undir í hálfleik en Fylkir hafði betur gegn Fjölni, 3-1.

Sigrún Birta Kristinsdóttir kom KR yfir í fyrri hálfleik en Valskonur sneru leiknum sér í vil í þeim síðari.

Ólína G. Viðarsdóttir, Elín Metta Jensen, Rakel Logadóttir og Hugrún Arna Jónsdóttir skoruðu mörk Vals á 23 mínútna kafla í síðari hálfleik og gerðu þar með út um leikinn.

Úrslitaleikurinn fer fram á mánudagskvöldið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×