Menning

Theódór Júlíusson heiðurlistamaður Kópavogs

Bjarki Ármannsson skrifar
Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri með listamönnunum heiðruðu og Karen E. Halldórsdóttur, formanni lista- og menningarráðs.
Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri með listamönnunum heiðruðu og Karen E. Halldórsdóttur, formanni lista- og menningarráðs. Mynd/Kópavogsbær
Theódór Júlíusson leikari var í dag útnefndur heiðurslistamaður Kópavogs. Lista- og menningarráð Kópavogsbæjar upplýsti þetta við hátíðlega athöfn í Gerðarsafni, listasafni Kópavogs í dag.

„Það er mikil vegsemd að vera útnefndur heiðurslistamaður af bæjarfélagi sínu. Ég tala nú ekki um bæjarfélag eins og Kópavog þar sem menningin blómstrar,“ sagði Theódór í ræðu sinni við tækifærið. Theódór er fæddur á Siglufirði en hefur búið í Kópavogi frá árinu 1990. Hann er meðal annars þekktur fyrir hlutverk sín í kvikmyndunum Englar alheimsins, Reykjavík-Rotterdam og Eldfjalli, en fyrir hlutverk sitt þar hlaut hann verðlaun sem besti leikarinn á kvikmyndahátíðinni Eurasia í Kazakstan og á kvikmyndahátíðinni í Sao Paulo. 

Listakonurnar Þuríður Blær Jóhannsdóttir, Tinna Sverrisdóttir og Salka Sól Eyfeld voru á sama tíma útnefndar bæjarlistamenn Kópavogs. Þær skipa hljómsveitina Tazmania og verður samningur gerður við þær um að taka þátt í fræðslu – og menningarstarfi skólabarna í Kópavogi í haust. Þær segjast ekki geta beðið eftir að taka til starfa, en Blær, Tinna og Salka Sól eru allar meðlimir í rappsveitinni Reykjavíkurdætur sem vakið hefur athygli undanfarið.

Lista- og menningarráð hefur útnefnt heiðurslistamann á þessum afmælisdegi bæjarins frá árinu 1988 en í fyrsta sinn nú er samhliða verið að velja bæjarlistamenn. Með fyrrnefnda valinu er verið að heiðra listamann fyrir ævistarf en með því síðarnefnda er verið að velja unga og efnilega listamenn til að sinna tilteknu fræðslu- og menningarstarfi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×