Bílabúð Benna á Akureyri Finnur Thorlacius skrifar 23. maí 2014 12:15 Nokkrir af bílum Chevrolet.
Bílabúð Benna heldur áfram sínu árlega landshornaflakki, staldrar við á Akureyri næst og slær upp bílasýningu í Bílaríki, á laugardaginn kemur. “Hér á bæ eru menn alltaf spenntir að komast til Akureyrar, þar höfum við átt marga góða viðskiptavini í gegnum tíðina.” segir Jón Kr. Stefánsson, sölustjóri Chevrolet hjá Bílabúð Benna. “Heimamenn munu fá að skoða og reynsluaka nýjustu Chevrolet bílunum okkar, en þeir hafa notið mikilla vinsælda meðal landsmanna, enda altalað að í Chevrolet sé fólk að fá mikinn staðalbúnað og öryggi fyrir hagstætt verð.” Bílabúð Benna sýnir líka nýja sportjeppann Macan frá Porsche í fyrsta skipti norðan heiða og hinn margverðlaunaði Porsche Cayenne verður líka í bílaflotanum þeirra. Sýningin er haldin í samstarfi við Bílaríki við Glerárgötu 36, sem er þjónustuaðili Chevrolet á Akureyri og stendur yfir frá kl. 11:00 til 16:00, laugadaginn 24. maí.
Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Innlent