Fótbolti

KA skaust af botninum með stórsigri

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Vísir/Daníel
KA nældi í fyrstu stig sumarsins með látum í öruggum sigri á Tindastól fyrir norðan í kvöld. Tindastóll situr á botni 1. deildar eftir tapið.

Akureyringarnir hafa byrjað mótið illa en svöruðu aldeilis gagnrýnisröddum með stórsigrinum í dag. Stefán Þór Pálsson kom KA yfir í upphafi leiks og var staðan 1-0 fyrir KA í hálfleik.

Á tíu mínútna kafla gerðu heimamenn síðan út um leikinn í seinni hálfleik. Hallgrímur Mar Steingrímsson bætti við marki fyrir heimamenn og bætti síðar við öðru marki af vítapunktinum aðeins tveimur mínútum síðar.

Úlfar Valsson gerði endanlega út um leikinn nokkrum mínútum síðar með fjórða marki KA. Glæsilegur sigur staðreynd sem gæti reynst liðinu mikilvægur í baráttunni sem framundan er í 1. deildinni.

Úrslit:

KA 4-0 Tindastóll.

Upplýsingar um markaskorara koma frá Úrslit.net




Fleiri fréttir

Sjá meira


×