Fótbolti

Aron og Arnór: Vorum svolítið skammaðir þegar við vorum yngri

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Aron Einar Gunnarsson, landsliðsfyrirliði í fótbolta, og Arnór Þór Gunnarsson, hornamaður handboltalandsliðsins, eru bræður eins og flestir vita.

Í dag var tilkynnt um samstarf landsliðanna en þau bjóða hvort öðru á landsleiki í kvöld og á miðvikudagskvöldið. Handboltaliðið mætir Portúgal að Varmá í kvöld og fótboltaliðið mætir Eistum á Laugardalsvelli á miðvikudaginn.

Arnar Björnsson hitti þá bræður á Hilton Hótel Nordica í dag og spurði Aron Einar fyrst hvort hann væri betri í handbolta en bróðir sinn. Aron Einar var nefnilega gífurlega efnilegur handboltamaður á sínum yngri árum.

„Nei, það er nú ekki svo gott. Ef ég myndi reyna að skjóta núna færi ég úr axlarlið. Ég læt það vera eins og er,“ sagði Aron Einar en valdi Arnór Þór rétt með að fara í handboltann?

„Ég var náttúrlega markvörður [í fótbolta] þegar ég var yngri og er ekki nema einn og hálfur á hæð þannig ég hefði ekki getað gert mikið í markinu. Ég valdi rétt held ég,“ sagði hann kátur.

Arnór fylgist vel með bróður sínum Aroni sem spilar með Cardiff í ensku B-deildinni næsta vetur eftir að liðið féll úr úrvalsdeildinni í vor.

„Ég reyni að horfa á alla leiki í ensku deildinni og þegar landsliðið kemur saman horfi ég spenntur í sófanum heima í Þýskalandi. Til dæmis í síðustu undankeppni var ég alveg brjálaður alltaf,“ sagði Arnór og Aron reynir hvað hann getur að fylgjast með Arnóri.

„Það er aðeins erfiðara að finna leikina og ekki jafnmikið sýnt og á Englandi. En maður reynir að fylgjast með þessu á netinu. Svo er það fjölskyldan sem hefur gífurlegan áhuga á okkur báðum og hvað við erum að gera. Systur okkar sérstaklega tala mikið við okkur þannig maður fær allt beint í æð.“

Fjölskylda þeirra bræðra er mikið íþróttaáhugafólk og hefur hún eðlilega mikinn áhuga á ferlum bræðranna. Fá þeir skammir þegar illa gengur og lof þegar vel gengur?

„Þegar við vorum yngri vorum við svolítið skammaðir en í dag er meira verið að peppa okkur upp,“ sagði Arnþór Þór.

Allt innslagið má sjá í spilaranum hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×