Ófrjósemis app sigga dögg kynfræðingur skrifar 13. júlí 2014 13:00 Ófrjósemi getur haft áhrif á alla þætti daglegs lífs Mynd/Getty
Um 15% para lendir í erfiðleikum með að eignast barn þannig að það eru miklar líkur á að þú þekkir þó nokkur pör sem hafa átt eða eiga í slíkum erfiðleikum. Flestir sem takast á við ófrjósemi segja að það sé það erfiðasta sem þeir hafa gengið í gegnum og eftir tvö ár af árangurslausum tilraunum er meirihluti kvenna orðnar þunglyndar og kvíðnar. Gyda Eyjólfsdóttir sálfræðingur og Berglind Ósk Birgisdóttir hjúkrunarfræðingur hafa búið til smáforrit (app) sem leiðir einstaklinga í gegnum ófrjósemi í formi gagnabanka sem þær kalla IVF Coaching. Í gagnabankanum er samansafn rannsóknarniðurstaðna sem konur og pör í glasameðferðarferli geta nýtt sér til að auka líkur á getnaði í næstu glasameðferð. Í gagnabankanum má einnig finna upplýsingar sem geta auðveldað fólki að takast á við glasameðferðarferlið þannig að því líði ekki eins illa í meðferðinni en upplýsingarnar eru byggðar á niðurstöðum rannsókna og reynslu af sálfræðiinngripum í tengslum við glasameðferðir. Gyða og Berglind fengu styrk frá Nýsköpunarmiðstöð Íslands til að hjálpa þeim að koma gagnabankanum yfir í smáforrit á ensku. Nú leita þær að meira fjármagn og eru því með hópfjármögnunarferli á Karolina Fundar. Uppá vantar 3.700 evrum sem eru um 570.000 krónur en með þeirri fjárhæð, styrknum og þeirra eigin fjárframlagi ná þær að greiða fyrir forritunina og koma smáforritinu í Google Play store. Samkvæmt Karolina Fund koma um 2-3 áheit frá hverjum 100 heimsóknum á verkefnasíðuna. fyrir þá sem treysta sér ekki til að útbúa aðgang inni á Karolina Fund, þá má líka leggja inn á bankareikning: 0528-26-479, inn á kennitöluna: 650614-0970. Til að kynna sér ófrjósemi nánar má leita til Tilveru, hagsmunasamtök fólks um ófrjósemi.
Heilsa Lífið Mest lesið Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Lífið Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Boltamömmur í miðjumoði Gagnrýni Nýr Bond lítur dagsins ljós von bráðar Bíó og sjónvarp Top Gun- og Alien-leikari látinn Lífið Ótrúleg saga fólks sem valdi mildi og mannúð í stað reiði Menning Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Lífið „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Lífið Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Lífið