Forsætisráðherra segist hafa tekið þá ákvörðun að taka við málefnum dómstóla lögreglu og ákæruvalds í samráði við Bjarna Benediktsson fjármálaráðherra.
„Þetta fellur ágætlega að því sem kveðið er á um stjórnarráðslögunum að eðlislík málefni eigi heima saman þó það hefði ekkert útilokað að annar ráðherra hefði farið þarna inn,“ sagði Sigmundur Davíð á fundi með blaðamönnum við ráðherrabústaðinn í Tjarnargötu síðdegis.
Aðspurður hvort hann hafi ekki nóg á sinni könnu segir Sigmundur Davíð að hann reikni ekki með því að þurfa að sinna hlutverkinu lengi. Framundan séu breytingar í stjórnarráðinu.
„Eitt af því sem þar er sérstaklega til skoðunar er að skipta aftur upp innanríkisráðuneytinu og stofna aftur sérstakt dómsmálaráðuneyti,“ segir Sigmundur Davíð. Hann reikni með því að það muni taka tiltölulega stuttan tíma.
Sigmundur Davíð gagnrýndi umboðsmann fyrir að hafa ekki gefið Hönnu Birnu frest til þess að gera athugasemdir við bréf sitt. Umboðsmaður sendi Hönnu Birnu bréfið í gær og óskaði hún eftir að fá að gera athugasemdir áður en það yrði gert opinbert. Þeirri beiðni neitaði umboðsmaður.
„Það eru mannréttindi allra, þar með talið ráðherra, að hafa andmælarétt þegar þeir eru sakaðir um hluti.“

Sigmundur Davíð telur að Hanna Birna skaði ekki ríkisstjórnina á meðan hún hugsi sig um hvort hún hætti í stjórnmálum. Sigmundur Davíð telur málið ekki skaða ímynd ríkisstjórnarinnar en segir það hafa sóað dýrmætum tíma hennar til þess að
„Skaðinn liggur meðal annars í því í að það fer heilmikill tími í að ræða mál sem varðar ekki landsins gagn og nauðsynjar ef svo má segja. Það er að segja þau tækifæri sem við stöndum frammi fyrir. En hvað varðar áhrif til lengri tíma litið, þá held ég þetta ekki þurfa að hafa mikil neikvæð áhrif.“