Askja hefur selt 1.000 bíla á árinu Finnur Thorlacius skrifar 29. september 2014 11:30 Höfuðstöðvar Öskju.
Bílaumboðið Askja, umboðsaðili Mercedes-Benz og Kia Motors, afhenti á dögunum þúsundasta bíl fyrirtækisins á árinu. Alls hafa nú verið skráðir um 700 Kia bílar, um 200 Mercedes-Benz fólksbílar og um 100 Mercedes-Benz atvinnubílar á fyrstu rúmlega átta mánuðum ársins. Þúsundasti bíllinn sem afhentur var er af gerðinni Kia Sportage. ,,Við erum afar ánægð með góðan árangur Öskju á árinu. Askja er með 11,4% markaðshlutdeild af sölu nýrra bíla hér á landi fyrstu átta mánuði ársins. Kia heldur áfram mikilli sókn á Íslandi og er með um 700 bíla selda á árinu og rétt um 9% markaðshlutdeild og er þar með þriðji mest seldi bíllinn á Íslandi á þessu ári. Mercedes-Benz er í efsta sæti yfir mest seldu lúxusbíla ársins en alls hafa um 300 nýir fólks- og atvinnubílar frá þýska bílaframleiðandanum selst hér á landi á árinu,“segir Jón Trausti Ólafsson, framkvæmdastjóri Bílaumboðsins Öskju. ,,Góður árangur Kia er afar ánægjulegur en kemur ekki á óvart. Kia bílarnir hafa fengið mikið lof fyrir fallega hönnun, lága eyðslu og mengun. Kia býður 7 ára ábyrgð á öllum nýjum bílum sem er lengsta ábyrgð sem nokkur bílaframleiðandi býður upp á í heiminum. Mercedes-Benz hefur átt góðu gengi að fagna hér á landi þrátt fyrir erfiða tíma í bílasölu og á mjög dyggan aðdáendahóp. Mercedes-Benz hefur sent frá sér marga spennandi bíla að undanförnu og þeir nýjustu GLA og C-Class hafa fengið mjög góða dóma fyrir að vera sparneytnir og umhverfismildir sem er það sem kaupendur leita í mjög auknum mæli eftir,“ segir Jón Trausti. Hann segir að mörgu þurfi að huga varðandi rekstur bílaumboðs og þá ekki einungis söluhlutann. ,,Þjónustan þarf líka að vera til fyrirmyndar og ég tel að það hafi tekist vel til hér hjá Öskju. Við höfum gott starfsfólk hér sem leggur metnað sinn í góða og persónulega þjónstu fyrir viðskiptavini sem skiptir auðvitað gríðarlega miklu máli. Við höfum fyrsta flokks aðstæður hér á Krókhálsinum og erum með fullkomin bílaverkstæði, varahlutaþjónustu og rúmgóðan og bjartan sýningarsal fyrir Mercedes-Benz og Kia bíla,“ segir Jón Trausti ennfremur.
Mest lesið Alríkislögreglan birtir myndskeið af morðingjanum Erlent Staðfesta dóm yfir tvíburabræðrunum en refsing Samúels Jóa milduð Innlent Íslendingar í meistaradeild þrátt fyrir herleysið Innlent Vaktin: Vopnið fundið og FBI dreifir myndum Erlent Trump segist nokkuð viss um að grunaður morðingi hafi verið handsamaður Erlent Alvarlegt atvik kom upp í Heiðarskóla Innlent Hæstiréttur tekur fyrir mál móður sem dæmd var í 18 ára fangelsi Innlent Ísland gæti þurft að kaupa losunarheimildir fyrir milljarða til að standa við skuldbindingar Innlent Bandaríkjastjórn fargar getnaðarvörnum fyrir 9,7 milljónir dala Erlent Ríflega þúsund börn bíða eftir að komast að en ekki 400 Innlent
Ísland gæti þurft að kaupa losunarheimildir fyrir milljarða til að standa við skuldbindingar Innlent
Ísland gæti þurft að kaupa losunarheimildir fyrir milljarða til að standa við skuldbindingar Innlent