Enski boltinn

Annað tap Íslands gegn Svíum

Anton Ingi Leifsson skrifar
Arna Sif skoraði tvö mörk.
Arna Sif skoraði tvö mörk. Vísir/Valli
Íslenska kvennalandsliðið í handknattleik tapaði í annað sinn á þremur dögum fyrir því sænska í vináttuleik.

Leikirnir fóru báðir fram í Svíþjóð, en leikurinn í dag tapaðist með átta mörkum; 32-24.

Ramune Pekerskyte var markahæst í íslenska liðinu, en næst kom Rut Jónsdóttir.

Markaskorarar Íslands: Ramune Pekarskyte 7, Rut Jónsdóttir 4, Birna Berg Haraldsdóttir 3, Brynja Magnúsdo´ttir 3, Arna Sif Pálsdóttir 2, Þórey Rósa Stefánsdóttir 2, Steinunn Hansdóttir 1, Ragnheiður Júlíusdóttir 1, Bryndís Wöhler 1.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×