Læknir á Höfn hringdi rúntinn á lungnasjúklinga Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 27. október 2014 14:31 Læknir á Höfn hringdi til einstaklinga með þekkta lungnasjúkdóma. Vísir/Getty
Gosmengun frá Holuhrauni hefur strítt íbúum á Suðurlandi undanfarna daga og hafa íbúar á Höfn á Hornafirði sérstaklega fundið fyrir menguninni. Styrkur brennisteinsdíoxíðs (SO2) var 1800 míkrógrömm á rúmmetra á Höfn og í Skaftafelli í hádeginu. Styrkurinn var um 10 þúsund míkrógrömm á rúmmetra á tíma í gær. Á vef Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands kemur fram að vitað sé til þess að einstaklingar hafi fundið fyrir einkennum vegna mengunarinnar og voru helstu einkenni sviði í efri öndunarfærum og einnig í augum og nefi. Læknir á Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Höfn hringdi til einstaklinga með þekkta lungnasjúkdóma þar sem gildin mældust sem hæst til að kanna ástand þeirra. Það kom fram í viðtölum hennar að fólk fann fyrir auknum einkennum en almennt var fólk vel upplýst um ástandið og fylgdi almennum ráðleggingum. Fólk hefur haldið sig innandyra, hækkað á ofnum og lokað gluggum. Sveitarfélagið Hornafjörður hefur sett inn flipa á heimasíðu sína með upplýsingum vegna eldgosins í Holuhrauni: . Þar er hægt að finna tengla með upplýsingar um mæligildin hér á Hornafirði ásamt ráðleggingum o.fl. Er íbúum bent á að fylgjast með og gera viðeigandi ráðstafanir.
Bárðarbunga Mest lesið „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Innlent „Þú værir í fangelsi ef ekki væri fyrir mig“ Erlent Sundlaugar opnar til miðnættis og ótakmörkuð bílastæði Innlent Þingnefnd breytir ekki forgangsröð jarðganga Innlent Ari missti af fyrsta fundinum Innlent Kærð fyrir að draga sér ríflega tólf milljónir úr dánarbúi Innlent Fjögurra flokka meirihluti í Norðurþingi Innlent Kourani gæti losnað eftir þrjá mánuði eftir lagabreytingu Innlent Faldi rúmar þrjátíu milljónir í peningaskáp Innlent Þórkatla slökkvi vonarneistann með nýjum samningi Innlent Fleiri fréttir Fjögurra flokka meirihluti í Norðurþingi „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Þingnefnd breytir ekki forgangsröð jarðganga Þórkatla slökkvi vonarneistann með nýjum samningi Lilja Björg ráðin sveitarstjóri Dalabyggðar Kærð fyrir að draga sér ríflega tólf milljónir úr dánarbúi Sjálfstæðismenn formenn sjö ráða af átta Baldur og Herjólfur sigla til Eyja Sundlaugar opnar til miðnættis og ótakmörkuð bílastæði Dýrum stefnt í hættu Unnur Brá sveitarstjóri í Borgarbyggð og Skorradalshreppi Beri skylda að skila Dananum hugsanlega á Þingvöllum Tímamót í borginni, innbrot í kjúklingabú og forritari á barnsaldri „Ávirðingarnar sem þetta fólk lét út úr sér eru því sjálfu til skammar“ Sumaráætlun Herjólfs frestað Leit að eftirmanni Höllu Bergþóru hafin Fær annan skóla undir sinn væng Faldi rúmar þrjátíu milljónir í peningaskáp Skjálftahrinan mallar enn Ari missti af fyrsta fundinum Kourani gæti losnað eftir þrjá mánuði eftir lagabreytingu Situr rúma viku á þingi fyrir sumarfrí „Heiður lífs míns að vera borgarstjóri“ Fordæma innbrot í Reykjabú Mun örugglega leita ráða hjá Heiðu „Greiddi smyglurum verulegar upphæðir til að komast á leiðarenda“ Ljósið fékk langtímasamning Ætlar ekki í varaformannsframboð Verði hægt að sækja um skilnað án þess að gefa upp ástæðu Yfir 70 þúsund horfðu á kappræðurnar á Sýn Sjá meira