Audi Q3 verður grænni Finnur Thorlacius skrifar 28. nóvember 2014 10:23 Audi Q3.
Mest seldi bíll í Evrópu í lúxusjeppaflokki er Audi Q3 og Audi ætlar að halda þeim bíl þar með því að bjóða eyðslugrennri vélarkosti í bílnum vinsæla. Samkeppnin frá bílunum BMW X1 og Mercedes Benz GLA er hörð. Engu að síður jókst sala Audi Q3 um 60% í 145.000 bíla á heimsvísu á síðasta ári og um 30% á fyrstu 10 mánuðum þessa árs. Er það til vitnis um miklar vinsældir lúxusjepplinga um þessar mundir. Audi ætlar að bjóða vélar í Q3 sem slökkva á helmingi strokka þeirra ef ekki er þörf á öllu afli þeirra. Munu slíkar vélar verða í boði þegar bíllinn verður uppfærður á næstunni, mitt á milli nýrra kynslóða hans. Audi gerir ráð fyrir enn meiri sölu Audi Q3 á næsta ári og að 40.000 fleiri slíkir bílar muni seljast árið 2015 en í ár. Ekki síst er það vegna stóraukinnar framleiðslu á bílnum í Kína. Spáð er að sala í lúxusjeppaflokki muni nema 1,1 milljón bíla í heiminum árið 2019, en sala í þessum bílaflokki nam einungis 220.000 bílum árið 2011. Þýsku framleiðendurnir hafa nánast átt þennan flokk hingað til, en nú er von á þessháttar bílum frá bílaframleiðendunum Jaguar, Infinity, Alfa Romeo og Cadillac. Ekki mun því samkeppnin minnka hjá þeim þýsku þó svo plássið sé yfrið ef spár fyrir komandi ár reynast réttar.
Mest lesið Skaust inn með tómata og fékk enn eina sektina Innlent Séð Margréti beita móður sína ofbeldi rétt áður en hún myrti föður sinn Innlent Ótrúlegur öldugangur og margt að mestu horfið Innlent Aðild að ESB þurfi ekki að vera já eða nei spurning Innlent Lausir endar í Edition-málinu Innlent Forsætisráðherra sækir minningarathöfn og fundi í Kænugarði Erlent Fjörutíu milljarða greiðsla Kerecis snýr halla á ríkissjóði í afgang Innlent Hefði þótt skrítið að senda alla sjúkrabíla með vatnsbrúsa Innlent Sólveig Anna furðar sig á kjörum borgarstjóra Innlent Fjögur ár frá innrás Rússa: Sorg sé ekki nógu stórt orð Erlent Fleiri fréttir Tesla Cybertruck og Ferrari í Vestmannaeyjagöngum Sjá meira