The Sex Factor sigga dögg skrifar 24. nóvember 2014 14:00 Dómararnir í The Sex Factor eru allir klámleikarar. Skjáskot
Ætli þetta falli ekki undir flokkinn „allt er nú til“. Eða jafnvel, fólk gerir hvað sem er fyrir peninga og frægð. Nýjasta nýtt í raunveruleikaþáttum er þátturinn „The Sex Factor“ þar sem 16 einstaklingar (8 stelpur og 8 strákar) geta sótt um að leysa allskyns klámmyndatengdar þrautir (í anda Americas Next Top Model) og sá eða sú sem endar sem sigurvegari fær 1 milljón bandaríkja dala í verðlaun auk þess að fá að sænga með klámleikkonunni Belle Knox. Þátttakendur munu búa saman á meðan á keppninni stendur og má búast við að þar muni ganga á ýmsu, rétt eins og almennt í raunveruleikaþáttum. Belle Knox er einn dómaranna í þáttunum en hún er þekkt sem klámleikkonan sem er í Duke háskólanum og olli miklu hneyksli í kjölfar þess að upp komst að hún starfaði í klámi. Hún er komin með sinn eigin raunveruleikaþátt. Það renna eflaust tvær grímur á marga og má velta fyrir sér hvort þetta sé spaug eða raunveruleikinn en þegar klám er annars vegar getur línan verið ansi óskýr. Nú er bara spurning hvenær þetta verður sýnt, eða kannski hvort.
Heilsa Mest lesið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið Fundu ástina á Domino's Lífið „Ég er enn að venjast andlitinu á mér“ Bíó og sjónvarp Hinsegin ást í loftinu Lífið Ekki gálgadans heldur hæ dúddelí dæ Gagnrýni Klöppuðu fyrir ofan höfuð á Frikka Dór Lífið Hryllingur og hiti á klúbbnum Lífið Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Lífið Stjörnurnar fögnuðu flúruðum Maroni Tónlist „Ókrýndir hip-hop kóngar Íslands“ halda 20 ára afmælistónleika Tónlist