Ólafsfjarðarmúla lokað í kvöld vegna snjóflóðahættu Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 11. desember 2014 22:21 Slæm færð er víða á vegum landsins. Vísir/Auðunn Níelsson
Ólafsfjarðarmúla verður lokað klukkan 23 í kvöld vegna snjóflóðahættu. Þá er ófært á Bröttubrekku og ekki reiknað með að þar verði fært í kvöld. Þá er hálka á Sandsskeiði, Hellisheiði og Þrengslum og á flestum öðrum leiðum á Suðurlandi. Hálka og skafrenningur er á Holtavörðuheiði og mjög slæmt skyggni. Hálka er svo víða á Vesturlandi, éljagangur og skafrenningur á fjallvegum. Á Vestfjörðum er hálka og skafrenningur á fjallvegum á sunnanverðum fjörðunum en snjóþekja og éljagangur á Gemlufallsheiði. Þæfingsfærð er á Steingrímsfjarðarheiði og Þröskuldum en þar er einnig skafrenningur. Súðavíkurhlíð er nú opin en þar er ennþá varúðarstig vegna snjóflóðahættu og eru vegfarendur beðnir um að sýna sérstaka aðgát. Á Norðurlandi vestra er víða hálka og skafrenningur og snjókoma á stöku stað. Þæfingsfærð og skafrenningur er á Þverárfjalli og þungfært milli Sauðárkróks og Hofsóss. Ófært er yst á Siglufjarðarvegi. Á Norðausturlandi er þæfingsfærð og snjókoma á Öxnadalsheiði. Einnig er þæfingur í Köldukinn og á Mývatnsheiði. Annars er yfirleitt snjóþekja eða hálka á vegum og víða ofankoma. Mjög slæmt skyggni er á Mývatns- og Möðrudalsöræfum og hálka og skafrenningur. Lokað er á Fagradal, þæfingsfærð og skafrenningur á Fjarðarheiði og Vatnsskarði eystra en snjóþekja í Oddskarði. Hálka eða snjóþekja er víða á Austurlandi og éljagangur. Óveður er í Hamarsfirði og við Höfn í Hornafirði. Hálka er víða við suðausturströndina en þæfingsfærð milli Kirkjubæjarklausturs og Mýrdalssands. Óveður er á Reynisfjalli.
Veður Mest lesið Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Veður Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Innlent Fleiri fréttir Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Sjá meira