Börnin á brúninni: Heimsókn í Háholt Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 15. febrúar 2014 08:00 Forstöðumenn Hinrik Már Jónsson og Ari Jóhann Sigurðsson reka Háholt. Þeir segja að börn ættu að koma mikið fyrr á meðferðarheimili, áður en þau eru komin í svo djúpstæðan vanda. Vísir/GVA
Rétt fyrir utan Varmahlíð í Skagafirði stendur meðferðarheimilið Háholt, eitt þriggja meðferðarheimlila sem rekin eru af Barnaverndarstofu. Húsið er ósköp venjulegt, eins og mjög stórt einbýlishús í miðri sveitinni. Það eru eingöngu tveir drengir á heimlinu núna og því vekur furðu að keyra upp að húsinu og sjá fimm bíla fyrir utan. Á móti blaðamanni og ljósmyndara taka forstöðumenn Háholts, þeir Ari Jóhann Sigurðsson og Hinrik Már Jónsson. Inni í eldhúsi er matráðskonan að undirbúa hádegismat, starfsnemi í tómtundafræðum aðstoðar. „Drengirnir eru enn í kennslustofunni“ segir Ari, býður okkur kaffisopa í eldhúsinu og svarar spurningu blaðamanns án þess að hún hafi verið borin upp. „Það eru ellefu starfsmenn hér á Háholti, í átta stöðugildum. Starfsmenn í vaktavinnu, kennarar og sálfræðingur í hlutastarfi, matráður og svo við forstöðumennirnir.“Komast burt frá neysluvinum Til ársins 2005 var meðferðarpláss fyrir sex börn í húsinu en nú aðeins þrjú. Aðsókn á meðferðarheimili hefur minnkað, þótt börnum í vanda fækki ekki. Það hefur verið í umræðunni að fagfólk og foreldrar vilji heldur að börnin fái meðferð heima eða á heimili nær Reykjavíkursvæðinu, svo betri aðgangur sé að sérfræðingum og fjölskyldan komist í heimsókn. „Við skiljum ekki þetta tal um aðgang. Hér kemur sálfræðingur einu sinni í viku, við eigum símafundi með geðlæknum og ég er sjálfur áfengis- og vímuefnaráðgjafi,“ segir Hinrik. „Hvaða sérfræðiþjónustu er verið að tala um? Ég held að staðsetning á svona stað sé ekki stóra málið, heldur hvernig starfið gengur innanhúss.“ Ari segir mikilvægt sé að taka börnin úr félagsskapnum og umhverfinu. „Flest þessara barna eiga bara neysluvini. Þar að auki strjúka þau miklu frekar ef það er stutt í bæinn. En best væri að hafa sem mesta fjölbreytni í úrræðum fyrir svo fjölbreyttan hóp.“ Ávallt tveir starfsmenn eru á vakt í Háholti og reyna að kveikja áhuga unglinganna á ýmis konar afþreyingu.Vísir/GVAEkki flókin hugmyndafræði Unglingarnir í Háholti eiga við alvarlegan hegðunarvanda að stríða. Í vinnslu er samningur milli Fangelsismálastofnunar og Háholts um að taka á móti unglingum sem þurfa að afplána fangelsisdóm. Sumir hafa því kallað Háholt endastöðina. „Unglingarnir sem koma í meðferð eru ekki í afplánun og við rekum ekki staðinn sem slíkan. Það er boðið upp á vímuefna- og sálfræðimeðferð en henni er ekki troðið ofan í börnin,“ segir Ari. „Við náum síst til unglinga sem hafa einbeittan vilja til að halda áfram neyslu eftir dvölina og hafa engan áhuga á að breyta lífi sínu. En margir hafa gott af dvölinni og fá nýja lífssýn.“ Hinrik bætir við að hugmyndafræði staðarins sé ekki flókin. „Við byrjum bara á grunninum og reynum að koma rútínu á líf þeirra. Vakna á morgnana og fara eftir einföldum reglum. Sem dæmi var einn unglingur með aðeins eitt markmið í byrjun. Það var að vakna við vekjaraklukku. Hann var mjög stoltur þegar það tókst eftir tvær vikur.“Svínsteik borin á borð í heimlislegu eldhúsi. Heiða Kristín Másdóttir og Ragnhildur Halldórsdóttir hjálpuðust að við að undirbúa matinn á meðan drengirnir voru í tölvuleik. Vísir/GVAMikilvægt að kveikja áhuga Það er að koma hádegismatur og drengirnir tveir koma báðir við í eldhúsinu til að athuga hvað sé í matinn. Þeir eru orðnir svangir og eru sáttir við svínasteik með öllu tilheyrandi. Annar þeirra er kominn með vinnu hjá bónda í nágrenninu. Hinn var að koma úr ökutíma, sem honum fannst svolítið erfiður í hálkunni. „Það eru fjölmörg börn sem hafa tekið bílpróf hjá okkur,“ segir Ari. „Já, og eignast áhugamál í fyrsta skipti.“ Hinrik segir meðferðina vera einstaklingsmiðaða og reynt sé að finna eitthvað við hæfi hvers og eins. „Ein stúlkan sem kom hingað var mjög reið og erfið í skapi en leið vel við að baka. Þannig að hún bakaði allan daginn og fékk að lokum starf hjá bakaranum á Sauðárkróki.“ Vistaverur unglinganna eru ansi fábrotnar enda gerist ósjaldan að þeir fari í reiðikast. Þá þarf að passa að þeir slasi sig ekki á oddhvössum húsgögnum og brothættu skrauti.Vísir/GVAEr hægt að gera betur? Ari og Hinrik eru sammála um að nýta mætti meðferðarheimili fyrr, um leið og vandinn byrjar. Það gæti verið valkostur að koma á heimilið og geta valið úr tilboðum; fara í skóla, fá vinnu og eignast áhugamál - jafnvel í fyrsta skipti á ævinni. En hvernig myndu Ari og Hinrik vilja bæta starfsemina ef nægt fjármagn væri til? „Við myndum alla vega ekki ráða tíu áfengisráðgjafa,“ segir Hinrik hlæjandi. „Ég myndi heldur vilja sjá stigbreytta eftirmeðferð. Fá styrk til að kaupa eða leigja lítið hús á Sauðárkróki. Þangað gætu unglingar farið sem eru búnir með meðferð hér og sýna vilja til að bæta sig. Þetta yrði eins og lítið áfangaheimili. Þetta vantar sárlega því við horfum alltof oft upp á börn ná sér á strik hér hjá okkur en fara svo úr meðferðinni í tómarúm. Annað hvort í ömurlegar heimilisaðstæður eða í gamla félagsskapinn. Þá vantar aukinn stuðning til að halda sér á réttri braut.“
Fréttaskýringar Tengdar fréttir Börnin á brúninni: Festast á gráa svæðinu Hópur barna sem flakka á milli meðferðarúrræða á unglingsárum er í hættu á að þróa með sér alvarlegri vanda á fullorðinsárum. 13. febrúar 2014 07:00 Börnin á brúninni: Vistin gaf mér von Aldís Ósk Egilsdóttir var á meðferðarheimilum frá 13 til 18 ára aldurs. Hún vildi aldrei hætta í neyslu en segir stofnanirnar nauðsynlegar til að kippa börnum úr skaðlegum aðstæðum. Foreldrar barna í vanda segja inngripin þurfa að gerast fyrr og vera yfirgripsmeiri. 14. febrúar 2014 08:00 Mest lesið Stór hópur ferðamanna lét greipar sópa skipulega um söluskála Innlent Hleypa rússnesku olíuskipi óáreittu til Kúbu Erlent Barn flutt í sjúkraflugi eftir alvarlegt umferðarslys Innlent Enn óhlýðnast ferðamenn: „Öldurnar skella á stuðlaberginu eins og sprengingar“ Innlent Ósátt með ábyrgðarleysi eftir að börn lentu í bílslysi á skólatíma Innlent Fyrirséð fjöldamorð í El Fasher: Að minnsta kosti tíu þúsund myrtir á tveimur dögum Erlent Enginn grunnskóli á Raufarhöfn í vetur Innlent Bergdís nýr sendiherra Íslands í Kína Innlent Kanna hvort hinn eftirlýsti sé í löglegri dvöl Innlent Trausti í öðru sæti í Eyjum Innlent Fleiri fréttir Trausti í öðru sæti í Eyjum Stór hópur ferðamanna lét greipar sópa skipulega um söluskála Barn flutt í sjúkraflugi eftir alvarlegt umferðarslys Enginn grunnskóli á Raufarhöfn í vetur Þyrlan gerð út vegna slyss við Varmahlíð Kanna hvort hinn eftirlýsti sé í löglegri dvöl Enn óhlýðnast ferðamenn: „Öldurnar skella á stuðlaberginu eins og sprengingar“ Ný könnun: Hástökk Viðreisnar í Hafnarfirði Ósátt með ábyrgðarleysi eftir að börn lentu í bílslysi á skólatíma Stórtónleikarnir verða fyrir neðan Öxarárfoss Bergdís nýr sendiherra Íslands í Kína Ársæll hættur sem skólameistari Bílar fastir við Steingrímsfjarðarheiði „Fólk er bara að vinna minna“ Au-pair kerfið sé misnotað til að fá ódýrt vinnuafl Sprengja í umsóknum um au-pair Nafnið verði krefjandi verkefni en í höndum íbúanna Foktjón á Suðurnesjum og Akranesi Verðbólga, biskupsmálið og utanríkismál Breytingar á deiliskipulagi Suðurlandsbrautar auglýstar Flugfólkið hjá Atlanta flakkar um allan heim „Brjálaður aðili“ reyndist eftirlýstur af lögreglu Pétur Markan bæjarstjóraefni Okkar Hveragerðis Sjö af hverjum tíu fýlum með plast í maganum Sameining hreppanna tveggja samþykkt Bílar sitja fastir vegna þungrar færðar Blóð úr hinum grunaða á hnífi á vettvangi Vonast til að náttúran verði þeim hliðholl Allir fundnir óslasaðir eftir snjóflóð Framkvæmdaleyfi Hvalárvirkjunar fellt úr gildi Sjá meira
Börnin á brúninni: Festast á gráa svæðinu Hópur barna sem flakka á milli meðferðarúrræða á unglingsárum er í hættu á að þróa með sér alvarlegri vanda á fullorðinsárum. 13. febrúar 2014 07:00
Börnin á brúninni: Vistin gaf mér von Aldís Ósk Egilsdóttir var á meðferðarheimilum frá 13 til 18 ára aldurs. Hún vildi aldrei hætta í neyslu en segir stofnanirnar nauðsynlegar til að kippa börnum úr skaðlegum aðstæðum. Foreldrar barna í vanda segja inngripin þurfa að gerast fyrr og vera yfirgripsmeiri. 14. febrúar 2014 08:00