KR-ingar sterkari en Keflvíkingar í þremur stöðum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. febrúar 2014 08:00 Pavel Ermolinskij er betri en Arnar Freyr Jónsson að mati þjálfaranna þriggja. Vísir/Daníel
Þeir gerast varla stærri leikirnir í deildarkeppni Dominos-deildarinnar en leikur toppliða KR og Keflavíkur í DHL-höllinni í kvöld. Liðin eru jöfn að stigum á toppnum og hafa aðeins tapað einum leik af sautján. Þetta er án vafa óopinber úrslitaleikur um deildarmeistaratitilinn. KR-ingar unnu ellefu stiga sigur í fyrri leik liðanna í Keflavík og Keflavíkurliðið hefur síðan unnið tíu deildarleiki í röð. KR-ingar töpuðu fyrsta leik ársins 2014 en hafa síðan unnið fimm leiki í röð. Þeir tefla nú fram nýjum Kana frá því í fyrri leiknum en Demond Watt Jr. hjálpaði liðinu að vinna góðan sigur í Njarðvík á dögunum. Fréttablaðið fékk þá Inga Þór Steinþórsson (þjálfara Snæfells), Benedikt Guðmundsson (þjálfara Þórs Þorl.) og Ívar Ásgrímsson (þjálfara Hauka) til að meta hvort liðið væri með betri menn í leikstöðunum fimm og hvort liðið sé með betri bekk. Samkvæmt því ættu KR-ingar að vinna leikinn í kvöld en lærisveinar Andy Johnston hafa nú endurheimt stórskyttuna Magnús Þór Gunnarsson frá því í fyrri leiknum en Magnús missti af þeim leik vegna meiðsla. Þar ættu Keflvíkingar að fá einhver stig af bekknum en Keflavík fékk 18 færri stig af bekknum en KR í fyrri leik liðanna (5-23). Það má í raun segja að í kvöld sé fyrsti í úrslitakeppni fyrir lið KR og Keflavíkur enda gæti heimavallarréttur í lokaúrslitunum ráðið miklu fyrir útkomuna í vor. Leikurinn hefst klukkan 19.15 og er í beinni á Stöð 2 Sport.Hér má sjá tölfræði byrjunarliðsmanna KR og Keflavíkur og hvar þjálfurunum þremur finnst liðin sterkari.Grafík/Fréttablaðið
Dominos-deild karla Mest lesið Haaland í ham er Noregur hóf HM á sigri Fótbolti Tárvotur Messi jafnaði HM markametið með þrennu Fótbolti Allt sem þú þarft að vita: Ráshópur og rástími Gunnlaugs á U.S. Open Golf Freyr ráðinn þjálfari Rosenborg Fótbolti „Ef einhver fer að slaka á fær hann að heyra það“ Fótbolti Freyr ekki lengi án starfs? Fótbolti Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Körfubolti Sterkasti læknir landsins Sport Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Körfubolti Viktor tekur við Haukum Körfubolti Fleiri fréttir Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Viktor tekur við Haukum Ásta Júlía kveður Val Hilmar Smári áfram í Stjörnunni Hermaðurinn Haukur í Stólana Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ Sjá meira