Menning

Send í himnaríki sýninganna

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Brátt heyrir sýningin Horn á höfði sögunni til.
Brátt heyrir sýningin Horn á höfði sögunni til. Mynd/Jóhanna Þorkelsdóttir
Fjölskyldusöngleikurinn Horn á höfði verður sýndur í síðasta sinn í Tjarnarbíói á sunnudaginn klukkan 13.

„Nú verður hann sendur upp í himnaríki sýninganna,“ segir Víðir Guðmundsson, einn þriggja leikara í verkinu.

Víðir segir tæplega 80 sýningar að baki fyrir rúmlega sjö þúsund manns. „Sýningin er orðin ansi lífseig og margt búið að gerast í lífi leikaranna á þessum tíma, meðal annars hafa nokkur börn komið undir!“

Horn á höfði eftir Berg Þór Ingólfsson og Guðmund Brynjólfsson, með tónlist eftir Villa Naglbít, var frumsýnt í Grindavík 2009 og hlaut strax frábærar viðtökur.

Gagnrýnendur lofuðu sýninguna í hástert og hún var valin besta barnasýning ársins það ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×