Fótbolti

Eigum að vinna Eistland á heimavelli

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Lars Lagerbäck var hress á æfingu íslenska liðsins í gær.
Lars Lagerbäck var hress á æfingu íslenska liðsins í gær. Fréttablaðið/Daníel
„Fyrst og fremst vil ég vinna leikinn,“ segir Lars Lagerbäck, landsliðsþjálfari karla í knattspyrnu, í samtali við Fréttablaðið um vináttulandsleikinn gegn Eistlandi á Laugardalsvelli í kvöld. Leikurinn er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport klukkan 19.15.

„Í svona vináttuleik reynum við að einbeita okkur að smáatriðum í okkar leik líkt og fyrir leikinn á móti Austurríki. Vonandi sé ég þau virka í leiknum á móti Eistlandi,“ segir Svíinn.

Lars vill ekki bara vinna leikinn í kvöld heldur hafa öll völd á vellinum. „Mér finnst mikilvægt að það sé sigurtilfinning í hópnum. Með fullri virðingu fyrir Eistlandi þá eigum við að vinna það á heimavelli. Það er mikilvægt að sýna að við getum stjórnað leiknum algjörlega og náð góðum úrslitum,“ segir hann.

Ísland tapaði fyrstu tveimur vináttulandsleikjum ársins; á móti Svíþjóð og Wales. Hvað var betra hjá liðinu í þriðja leiknum á móti Austurríki?

„Það var gott að sjá hversu mikið liðið bætti sig í seinni hálfleik eftir slakan fyrri hálfleik. Við bættum okkur til muna í þeim síðari og menn fundu sig betur í sínum stöðum. Við ætluðum að byggja sóknirnar upp á ákveðinn hátt sem fór að ganga betur. Það var gaman að sjá,“ segir Lagerbäck.

Landsliðið kemur ekki aftur saman fyrr en í haust þegar undankeppni EM hefst þar sem búið er að afnema alþjóðlegu leikdagana í ágúst. Hvernig senda Lars og Heimir strákana inn í sumarið?

„Fyrst og fremst vona ég bara að þeir eigi gott sumarfrí. Síðan er mikilvægt fyrir okkur að strákarnir sem eru samningslausir eða að leita sér að nýjum liðum finni sér lið þar sem þeir spila reglulega,“ segir Lars Lagerbäck.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×