Stærsta velferðarmálið Þorbjörn Þórðarson skrifar 10. september 2014 09:57 Þriðji stærsti útgjaldaliður ríkissjóðs á næsta ári samkvæmt fjárlagafrumvarpinu sem kynnt var í gær er vaxtakostnaður, eða 84 milljarðar króna. Þrátt fyrir að tekist hafi að lækka kostnaðinn milli ára er ljóst að þetta er ævintýralega há fjárhæð og þessi kostnaður hefur engan veginn lækkað nægilega hratt á síðustu árum. Gert er ráð fyrir 4,1 ma.kr. afgangi á næsta ári og fjárlögin eru hallalaus annað árið í röð en fjárlögin 2014 voru fyrstu hallalausu fjárlögin frá árinu 2007. Þá hefur tekist að lækka skuldir ríkissjóðs og er gert ráð fyrir að þær verði 74 prósent af vergri landsframleiðslu Íslands árið 2015 en í samanburði var þetta hlutfall 90 prósent árið 2011. Þrátt fyrir árangur í ríkisfjármálum sem birtist m.a. í þessu, er enn of snemmt að hrósa happi. Jarðtengingin er líka rauður þráður í fjárlagafrumvarpinu og kynningarefni sem með því fylgir en þar segir: „Meginvandi ríkissjóðs er gríðarlegar skuldir og verulega íþyngjandi vaxtajöfnuður.“ Á öðrum stað segir: „Að óbreyttu tæki áratugi að greiða niður þær skuldir sem ríkissjóður stendur frammi fyrir og á sama tíma kæmi vaxtabyrðin í veg fyrir framlög til mikilvægra málaflokka.“ Þetta undirstrikar mikilvægi lækkunar vaxtakostnaðar ríkissjóðs í hnotskurn. Íþyngjandi vaxtabyrði stendur öðrum málaflokkum fyrir þrifum. Í fjárlagafrumvarpinu birtast áherslur ríkisstjórnarinnar þegar kemur að niðurskurði með ýmsum hætti. Þannig sparast 1.130 milljónir króna með því að stytta það tímabil sem heimilt er að greiða út atvinnuleysisbætur úr 36 mánuðum í 30. Einhver gæti fært fyrir því rök að hægt hefði verið að stytta þetta tímabil enn meira án þess að það hefði falið í sér pólitískt stórtjón fyrir ríkisstjórnarflokkanna. Til dæmis niður í 24 mánuði. Þannig er um fremur hófstilltan sparnað að ræða þótt þessu verði eflaust veifað í þingsal af stjórnarandstæðingum. Sérstakur saksóknari er ekki vinsælasta stofnunin í stjórnarráðinu og fjárheimild þeirrar stofnunar lækkar um rúmlega 430 milljónir króna. Sem er reyndar í samræmi við áætlun um fjármögnun stofnunarinnar fram að þeim tíma er hún verður lögð niður. Fjárhæðir í þessum handahófskenndu dæmum virðast hins vegar frekar ómerkilegar þegar þær eru skoðaðar í samhengi við vaxtakostnaðinn. Þetta eru aðeins tvö dæmi um málaflokka sem er verið að sníða til með tilheyrandi skerðingu framlaga eða beinni þjónustuskerðingu með það fyrir augum að ná markmiðum um jöfnuð í ríkisfjármálum. Annað nærtækt dæmi snýr að byggingu nýs Landspítala, sem er nú talsvert deilumál milli einstakra þingmanna stjórnarflokkanna þótt þingið hafi samþykkt á síðasta starfsdegi sínum fyrir þinghlé vorið 2014 þingsályktun um að flýta fyrir byggingu nýs Landspítala með 56 atkvæðum gegn engu. Kostnaðaráætlun vegna nýbygginga meðferðarkjarna, rannsóknarhúss og sjúkrahótels nýs Landspítala ásamt rekstrartækjum (lækningatækjum) fyrir þessar sömu fasteignir hljóðar upp á um 80 milljarða króna. Vaxtakostnaður ríkissjóðs á næsta ári er hærri en heildarkostnaður vegna byggingar spítalans, þrátt fyrir lækkun kostnaðarins. Og þar munar um heila fjóra milljarða króna. Lök staða ríkissjóðs og íþyngjandi vaxtakostnaður hefur staðið byggingu spítalans fyrir þrifum. Lækkun vaxtabyrðar ríkissjóðs er því stærsta og mikilvægasta velferðarmálið sem við stöndum frammi fyrir.Pistillinn birtist í dag í Markaðnum, fylgiriti Fréttablaðsins um viðskipti- og efnahagsmál. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þorbjörn Þórðarson Mest lesið Gríðarlegur velferðarábati með upptöku evru Dagur B. Eggertsson Skoðun Ég hélt að ég væri bara óvenju hrætt foreldri Heiðrún V. Ingudóttir Skoðun Siðferðilegt aflátsbréf - Um kerfisbundna notkun góðgerðarstarfs til að kaupa sér starfsleyfi Sigurður Sigurðsson Skoðun Vernd dýraheilbrigðis á Íslandi í ljósi reglna um frjálst flæði vöru á innri markaði ESB Erna Bjarnadóttir Skoðun Íslenska sumarveðrið dýrmæt auðlind? Gunnar Salvarssson Skoðun Við þurfum ekki að kaupa gervigreindarfullveldið að utan Hafsteinn Einarsson Skoðun Neyðin kennir nöktum Íslendingi að spinna Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Fullvinnsla heima, tollfrjálsir markaðir og raunhæf leið til að styrkja Krónuna og landsbyggðina Eggert Guðmundsson Skoðun Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson Skoðun Sjögren er miklu meira en augn- og munnþurrkur Hrönn Stefánsdóttir Skoðun
Siðferðilegt aflátsbréf - Um kerfisbundna notkun góðgerðarstarfs til að kaupa sér starfsleyfi Sigurður Sigurðsson Skoðun
Vernd dýraheilbrigðis á Íslandi í ljósi reglna um frjálst flæði vöru á innri markaði ESB Erna Bjarnadóttir Skoðun
Fullvinnsla heima, tollfrjálsir markaðir og raunhæf leið til að styrkja Krónuna og landsbyggðina Eggert Guðmundsson Skoðun
Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson Skoðun
Siðferðilegt aflátsbréf - Um kerfisbundna notkun góðgerðarstarfs til að kaupa sér starfsleyfi Sigurður Sigurðsson Skoðun
Vernd dýraheilbrigðis á Íslandi í ljósi reglna um frjálst flæði vöru á innri markaði ESB Erna Bjarnadóttir Skoðun
Fullvinnsla heima, tollfrjálsir markaðir og raunhæf leið til að styrkja Krónuna og landsbyggðina Eggert Guðmundsson Skoðun
Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson Skoðun