Batnar útsýnið
Valdimar
ETG Management
Hljómsveitin Valdimar hefur verið nokkuð áberandi í íslensku tónlistarlandslagi undanfarin ár. Frumburður sveitarinnar, Undraland, vakti mikla lukku og þá naut önnur plata sveitarinnar, Um stund, einnig talsverðra vinsælda. Batnar Útsýnið er þriðja plata Valdimars og hefur, eins og fyrri plötur, fengið ágætis spilun í íslensku útvarpi.
Platan er nokkuð tilraunakennd miðað við fyrri verk sveitarinnar án þess að hægt sé að tala um einhvers konar Kid-A-stefnubreytingu. Í öllu falli er reynt að víkka hljóðheiminn sem er sveimkenndari en áður hefur heyrst. Enn má þó heyra fastagesti sem kristallast í vel gerðum blásaraútsetningum sem stækka hljóminn þegar við á. Flutningur laganna er tipp-topp og öll tæknivinna sömuleiðis.
Betra útsýni fjallar annars um ástina, eða öllu heldur glataða eða týnda ást; hún fjallar um endalok ástarsambands – um sambandsslit. Textarnir eru einkar einlægir og flutningur höfundar þeirra ber með sér sálarangist og eymd… en sem betur fer er mesta eymdin að baki. Höfundur virðist eiga erfitt með að gera upp við sig hverjum sambandsslitin séu að kenna, ýmist ljóðmælanda eða hinum aðila sambandsins, stundum er hann sáttur við orðinn hlut en stundum saknar hann. Allt mjög kaotískt en um leið mannlegt.

Það er helst að ágætlega takist til í lögunum This Time, sem er eini enski textinn (og um leið sá „eðlilegasti“ vegna skorts á rími), Út úr þögninni, þar sem má heyra mjög flotta stígandi og lagið Hindranir. Besta lag plötunnar er þó síðasta lagið, Eftirspil, þar sem má heyra virkilega flotta spretti.
Niðurstaða: Platan er einlæg og hefur að geyma góða spretti en vantar slagara. Og þótt það þurfi alltaf að vera vín… þá þarf ekki alltaf að vera rím.