Eftirfarandi fæðutegundir ættu að hjálpa þér að leiðinni að mjórra mitti sé það eitt af markmiðunum ef svo er ekki ættirðu samt að borða meira af þeim bara fyrir hollustu sakir.

Í hverjum 100 grömmum af hindberjum er að finna tæplega 8 grömm af trefjum og einungis 60 hitaeiningar. Trefjarnar veita líkamanum seddutilfinningu sem gera þau að ákjósanlegu millisnakki.
Jarðarber og bláber eru líka frábær kostur en innihalda ögn minna af trefjum.

Regla númer eitt er að sleppa aldrei morgunmat. Veldu þér morgunmat sem inniheldur að minnska kosti 5 grömm af trefjum í hverjum skammti.
Trefjar halda blóðsykrinum í jafnvægi auk þess sem að seddutilfinningin endist lengur

Appelsínur, greipaldin, sítrónur og límónur eru mjög C-vítamínríkar og hjálpa til við fitubrennslu í líkamanum.
C-vítamín er vatnsleysanlegt vítamín og því óþarfi að hafa of miklar áhyggjur af því að neytt sé of mikils af því. Lágmarksinntaka vítamínsins eru 60 mg.

Grænt te inniheldur koffín sem svo aftur keyrir upp orkuna í líkamanum og þar af leiðandi brennir hitaeiningum, jafnvel við kyrrsetu.
Grænt te er líka hollt fyrir þær sakir að það inniheldur líkið af hitaeiningum, ólíkt koffínríkum gosdrykkjum.

Bleikja, lax og túnfiskur innihalda þónokkuð magn af EPA og DHA Omega-3, lifsnauðsynlegum fitusýrum.
Fitusýrurnar auka framleiðslu á ensímum sem brjóta niður fitu og minnka framleiðslu á ensímum sem að geyma fitu.