Kynferðisleg brjóstagjöf sigga dögg skrifar 8. janúar 2015 11:00 Atriði úr bíómyndinni "Me myself and Irene“ með leikaranum Jim Carrey í aðalhlutverki Vísir/Skjáskot
Brjóstagjöfin sjálf er ekki talin kynferðisleg athöfn fyrir konuna heldur geta hormónin sem losna við brjóstagjöfina inni í líkama konunnar verkað kynörvandi.Vísir/Getty Viðhorf til brjóstagjafar og brjóstamjólkur er umdeild víða um heim og skoðanir ýmsar. Í Saudí Arabíu þá var mæltu tveir klerkar með því að konur gæfu karlmönnum brjóstamjólkina sína í glasi. Þeir tengdu ekkert kynferðislegt við þetta athæfi því markmið þessarar brjóstagjafar var að tengja fólkið. Það er nefnilega refisvert fyrir konu að vera ein með karli sem ekki er blóðskyldur henni. Með brjóstamjólkinni ættu þau nú að vera tengd.Brjóstagjöf getur verið kynörvandi fyrir sumar konur og getur brjóstamjólk lekið þegar kynlíf er stundað ef konan er með virka mjólkurframleiðslu. Hægt er að viðhalda mjólkuframleiðslunni við í lengri tíma svo lengi sem brjóstið er mjólkað reglulega. Þó er misjafnt hvort konum þyki brjóstgjöf kynörvandi því sumar konur greina einmitt frekar frá kyndeyfð. Í Kína var annað uppi á tengingnum. Nýlega upprætti lögreglan í Kína vændishring þar sem menn borguðu nýbökuðum mæðrum fyrir brjóstamjólk auk kynlífsþjónustu. Sumar mæðranna greindu frá því að þær hættu með börn sín á brjóst því eftirspurnin eftir mjólkinni frá fullorðnum karlmönnum var svo gríðarleg. Sumir karlmenn drekka brjóstamjólk því þeir trúa því að hún hafi einhverja ofurkrafta og geti læknað allt frá psoriasis til krabbameins. Aðrir sækja í hana því þeim þykir það kynferðislega örvandi, sérstaklega ef er drukkið beint af brjósti, rétt eins og parið í neðangreindu myndbandi úr bandaríska þættinum Strange Sex. Í kynferðislegu samhengi telst brjóstagjöfin sem blæti (fetish).
Heilsa Mest lesið Berrössuð hjón og endurtekið efni Gagnrýni Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Lífið Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Lífið „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ Lífið Taskmaster Ísland snýr aftur Lífið Tryggðu þér nýtt rafhjól fyrir 2027 á hagstæðari kjörum Lífið samstarf Stelpurnar snúa aftur Bíó og sjónvarp Ekkert offors hjá Fors Lífið Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Bíó og sjónvarp Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Menning