Körfubolti

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Keflavík 99-92 | Stjarnan hirti þriðja sætið

Stefán Árni Pálsson í Ásgarði skrifar
Dagur Kár Jónsson, leikmaður Stjörnunnar.
Dagur Kár Jónsson, leikmaður Stjörnunnar. vísir/daníel
Stjarnan vann frábæran heimasigur á Keflavík, 99-92, í Dominos-deild karla í kvöld. Heimamenn voru alltaf einu skrefi á undan Keflvíkingum og uppskáru að lokum flottan sigur. Dagur Kár var frábær í liði Stjörnunnar og gerði hann 25 stig. Davon Usher var atkvæðamestur í liði Keflvíkinga en hann skoraði 39 stig. Stjörnumenn eru því komnir í þriðja sæti deildarinnar.

Gestirnir frá Keflavík byrjuðu leikinn betur og náðu undirtökunum á upphafsmínútum. Keflvíkingar voru ákveðnir og spiluðu fastan varnarleik, til að byrja með eins fastan og dómarar leiksins leyfðu en þegar leið á leikhlutann fóru að safna villum.

Justin Shouse fór hægt og bítandi að komast í takt við leikinn og þá fylgdu liðsfélagar hans með. Þegar flautað var til loka 1. leikhluta var Stjarnan allt í einu komin með átta stiga forystu 27-19 en Keflvíkingar voru stuttu áður yfir í leiknum.

Heimamenn byrjuðu annan leikhluta betur og komust fljótlega ellefu stigum yfir, 31-20. nú komnir með ellefu stiga forystu. Þá var Jarrid Frye einnig mættur til leiks fyrir Stjörnuna og að leik vel. Töluvert um mistök voru hjá báðum liðum í leikhlutanum en þegar leið á hann komust Keflvíkingar alltaf meira og meira í takt. Þröstur Leó Jóhannsson, leikmaður Keflavík, kom inn af bekknum og lét finna fyrir sér. Hann átti fínan sprett, bæði í sókn og sérstaklega í vörn. Þegar flautað var til hálfleiks var staðan 46-42 fyrir Stjörnuna.

Keflvíkingar héldu áfram að reyna saxa á forskot Stjörnunnar í byrjun síðari hálfleiks og tókst það í stöðunni 51-50. Usher var frábær á þessum tímapunkti fyrir Keflvíkinga en þegar gestirnir voru komnir yfir setti Dagur Kár í gírinn. Hann splundraði vörn Keflvíkinga oft á tíðum alveg í sundur og skoraði nokkrar frábærar körfur. Þegar loka leikhlutinn var eftir var staðan 73-62 fyrir Stjörnunni og var það mikið til Degi að þakka. Þá hafði hann gert 17 stig.

Keflvíkingar byrjuðu lokaleikhlutann ágætlega og byrjuðu strax að saxa á forskot Stjörnunnar. Þegar fjórðungurinn var hálfnaður var staðan 85-80 fyrir Stjörnuna. Mikil spenna því framundan. Stjörnumenn voru sterkari á lokamínútunum og kláruðu leikinn með sæmd. Það fór líklega of mikil orka hjá gestunum að vinna upp forystu Stjörnumanna. Leiknum lauk því með sigri heimamanna, 99-92.

Sigurður: Við gætum komið á óvart„Við erum ekki alveg sáttur eftir þennan leik og ætluðum að gera mun betur,“ segir Sigurður Ingimundarson, þjálfari Keflavíkur, eftir leikinn í kvöld.

„Varnarleikur okkar var ekki góður, sérstaklega ekki í síðari hálfleiknum. Við erum ennþá að púsla liðinu saman, breyta ýmsu og þetta tekur bara tíma.“

Sigurður segir að liðið þurfi að bæta nokkra hluti til að verða tilbúnir í slaginn þegar nær dregur vori.

„Við förum núna bara í það að undirbúa okkur fyrir bikarleikinn gegn KR á sunnudaginn. Það er næsta verkefni og við ætlum okkur áfram.“

 

Dagur: Vorum sjóðandi í síðari hálfleik„Ég er bara mjög ánægður með okkar leik í kvöld og þetta var virkilega flottur sigur hjá okkur,“ segir Dagur Kár Jónsson, leikmaður Stjörnunnar, en hann fór á kostum í leiknum.

„Við spiluðum vel nánast allan leikinn og sérstaklega í síðari hálfleiknum, þá vorum við sjóðandi heitir.“

Dagur segir að honum sé alveg sama hver skori stigin í leiknum, bara svo lengi sem liðið vinni leikinn en hann gerði 25 stig í kvöld. Stjarnan tapaði fyrir Tindastól í síðustu umferð.

„Við vorum mjög slappir í þeim leik og frekar ryðgaðir eftir jólafríið. Það hefur alltaf verið markmiðið á þessu tímabili að enda í fjórum efstu sætunum og þar erum við núna.“

 

Leiklýsing: Stjarnan - KeflavíkLeik lokið (99-92): Stjarnan með risasigur hér í Ásgarði. Frábær úrslit. Þeir voru einfaldlega sterkari undir blálokin.

39. mín (94-88): 
Usher setur niður tvö vítaskot. Þeir hafa ekki mikinn tíma. Hann er kominn með 37 stig. 



38. mín (88-83): 
Enn munar fimm stigum á liðunum. 



36. mín (85-80): 
Það er komin mikil spenna í leikinn. Fimm stiga munur og Keflvíkingar með boltann. Þetta verður eitthvað.

34. mín (81-73): 
Usher með fína körfu og fær vítaskotið að auki. Hann setur það niður og nú munar átta stigum. 

32. mín (75-64): 
Nú þurfa Keflvíkingar að koma með áhlaup ef þeir ætla ekki að fara tómhentir heim.

Þriðja leikhluta lokið: (73-62): 
Frábær endasprettur hjá Stjörnunni sem eru aftur komnir með 11 stiga forskot. 

27. mín (69-60): 
Dagur Kár virkilega góður hjá Stjörnunni núna. Kominn með 15 stig og hefur spundrað vörn Keflvíkinga nokkrum sinnum. 

25. mín (60-56): 
Usher er að fara á kostum fyrir Keflvíkinga núna og er kominn með 21 stig. Mikil spenna í leiknum. 

23. mín (50-51): 
Davon Usher setur hér niður skot og brotið á honum í leiðinni. Tvö stig og eitt af línunni. Keflavík komið yfir. 



22. mín (48-46): 
Þá má fastlega búast við því að þessi leikur verði spennandi alveg til enda. 

Hálfleikur (46-42): 
Keflvíkingar komu sterkir inn undir lok hálfleiksins og þá má sérstaklega nefna Þröst Leó Jóhannsson, sem var góður bæði í vörn og sókn. Kom inn af bekknum með mikla baráttu. 

18. mín (41-36): 
Gunnar Einarsson með rándýran þrist fyrir gestina og nú munar bara fimm stigum. 

16. mín (39-29): 
Stjörnumenn halda ákveðnum tökum á þessum leik. Nokkuð um mistök hjá báðum liðum þessa stundina. 

14. mín (35-24): 
Jarrid Frye kominn með níu stig fyrir Stjörnuna, rétt eins og Shouse. 

12. mín (31-20): 
Heimamenn byrja leikhlutann betur og eru nú komnir með ellefu stiga forystu. 

1. leikhluta lokið (27-19):
 Frábær lokakafli hjá heimamönnum í Stjörnunni og leiða þeir með átta stig mun eftir fyrsta leikhlutann. Shouse kominn með 9 stig fyrir þá hvítu.

8. mín (14-17): 
Sami munur helst á með liðunum. 

6. mín (10-13): 
Fínn gangur í leiknum og bæði lið að leika ágætleg, sérstaklega varnarlega. 

4. mín (8-9): 
Justin Shouse með fínan kafla fyrir Stjörnumenn og þeir minnka þetta niður í eitt stig. 

2. mín (2-7): 
Guðmundur Jónsson, leikmaður Keflavíkur, meiðist hér og þarf að fara útaf. Spurning hversu alvarlegt þetta er. 

2. mín (0-5): 
Keflvíkingar byrja betur og skora fyrstu stigin. 

1. mín (0-0): 
Þá er leikurinn hafinn.

Fyrir leik:
 Liðin berjast bæði um þessi vinsælu fjögur efstu sæti deildarinnar og tryggja þar með heimaleikjaréttinn í 8-liða úrslitum Dominos-deildarinnar. 

Fyrir leik: 
Keflvíkingar unnu Skallagrímsmenn í síðustu umferð, 78-75, í Keflavík en Stjarnan tapaði aftur á móti illa fyrir Tindastól á útivelli. 

Fyrir leik:
 Leikmenn komnir inn á völlinn og farnir að hita upp. Gríðarlega mikilvægur leikur fyrir bæði lið og greinilega hugur í mönnum.

Fyrir leik: Komiði sæl og blessuð. Hér verður leik Stjörnunnar og Keflavíkur lýst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×