Stjörnumenn réðu ekki við Jón Axel og endurfædda Grindvíkinga Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. janúar 2015 20:49 Jón Axel Guðmundsson. Vísir/Andri Marinó
Grindvíkingar fögnuðu sínum fimmta leik í röð í Dominos-deild karla í körfubolta þegar þeir unnu tólfmarka sigur á Stjörnunni, 104-92, í Röstinni í Grindavík í kvöld. Stjörnumenn tefldu fram tveimur bandarískum leikmönnum í leiknum en það dugði ekki á móti Grindavikurliðinu sem hefur heldur betur skipt um gír eftir skelfilega byrjun á tímabilinu. Grindvíkingar unnu aðeins 2 af fyrstu 9 leikjum tímabilsins en Sverrir Þór Sverrisson hefur tekist að snúa við Grindavíkurskútunni sem stefnir nú upp töfluna. Jón Axel Guðmundsson átti frábæran leik með Grindavík en þessi 18 ára gamli strákur var með 22 stig og 12 stoðsendingar í leiknum. Hann kom aftur heim um áramótin og hefur reynst frábær liðstyrkur fyrir Grindavíkurliðið. Rodney Alexander var með 27 stig og 14 fráköst, Ólafur Ólafsson skoraði 16 stig og Jóhann Árni Ólafsson var með 15 stig. Dagur Kár Jónsson skoraði 26 stig fyrir Stjörnuna og Justin Shouse var með 21 stig og 9 fráköst. Jarrid Frye skoraði 12 stig í væntanlega síðasta leik sínum fyrir Stjörnuna en nýi maðurinn Jeremy Martez Atkinson, var með 10 stig á 15 mínútum. Grindavík vann fyrsta leikhlutann 25-23 og var 54-49 yfir í hálfleik. Stjörnumenn minnkuðu muninn í þrjú stig fyrir lokaleikhlutann en heimamenn í Grindavík voru mun sterkari í fjórða og síðasta leikhlutanum.
Dominos-deild karla Mest lesið Ísland lenti í algjörum martraðarriðli Fótbolti Liverpool vann risaslaginn Fótbolti Þjálfari sem mætti Víkingi í fyrra lést í miðjum leik Fótbolti Lýsir eftir leiðtoga íslenska landsliðsins Handbolti Þjálfaragoðsögn látin taka pokann sinn: „Ég er undrandi“ Fótbolti Falla fleiri gleðitár hjá fjölskyldu Viktors í kvöld? Fótbolti Meistararnir lágu á heimavelli Fótbolti Slavia Prag engin fyrirstaða fyrir Arsenal Fótbolti Björgvin Páll hafi þaggað niður í efasemdaröddum Handbolti „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Uppgjörið: Njarðvík - Hamar/Þór 88-61 | Auðsóttur sigur Njarðvíkinga Keflavíkursigur í kaflaskiptum leik Stjarnan með þægilegan sigur á nýliðunum Hverjir eru bestu ungu strákarnir í Bónus-deildinni? Söguleg byrjun OKC á tímabilinu Íslandsmeistararnir mæta bikarmeisturunum Skagamenn senda Kanann heim Tilþrif 5. umferðar: Jukic stal senunni Ólíkar niðurstöður hjá landsliðsmönnunum Er Tóti Túrbó ofmetinn? „Gott að við gátum verið liðið sem kláraði þetta“ Erfitt kvöld fyrir Ármann og Tindastól Tvöföld tvenna Tryggva í tæpu tapi Góður lokaleikhluti tryggði Njarðvík sigurinn Styrmir með þrettán í öruggum sigri Zamora Uppgjörið: Valur - KR | 93-100 | KR hafði betur í slag Reykjavíkurstórveldanna Diljá stórkostleg í lokin í endurkomu í Hveragerði „Einn af bestu leikmönnunum í sögu íslensks körfubolta“ Hlýtur að vera alvöru krísufundur í Valsheimilinu um helgina Besta byrjun Chicago Bulls síðan Jordan var í liðinu Blikar áfram með fullt hús stiga ÍR - Ármann 96-83 | Nýliðarnir enn í leit að fyrsta sigrinum „Bara feginn að við fundum þó leið“ Tindastóll - Stjarnan 96-95 | Ótrúlegur endir á Króknum „Við þurfum að vera betri varnarlega“ Íslenski körfuboltinn og Grindavík verðlaunuð NBA-leikmaður með krabbamein Haukur Helgi: Höfum ekki verið að spila góðan körfubolta „Getum verið fjandi góðir“ Uppgjörið: Álftanes-Njarðvík 93-92 | Heitur Haukur var hetjan á Álftanesinu Sjá meira