Askja sýnir Kia Picanto Finnur Thorlacius skrifar 30. janúar 2015 09:56 Kia Picanto.
Bílaumboðið Askja heldur sýningu á Kia Picanto, minnsta og ódýrasta bíl Kia á morgun, laugardaginn 31. janúar. Sýningin er liður í 10 ára afmæli Öskju en fyrirtækið mun fagna þessum tímamótum með fjölda viðburða á árinu. Kynnt verður afmælisútgáfa af hinum vinsæla Picanto en um er að ræða beinskipta EX útfærslu sem hefur hingað til einungis verið í boði sjálfskiptur. Picanto EX kemur með ýmsum spennandi búnaði sem er meiri en gengur og gerist í þessum stærðarflokki, m.a. með álfelgum, hita í stýri, handfrjálsum búnaði (Bluetooth), USB/AUX tengi, skyggðum rúðum, rafmagni í rúðum aftur í og fram í, ESP stöðugleikastýringu o.fl. Bíllinn er á sérlega hagstæðu verði, eða 2.090.777 kr. Picanto er einn sparneytnasti og umhverfismildasti bíllinn í sínum stærðarflokki. Hann er að sjálfsögðu með 7 ára ábyrgð eins og allir nýir Kia bílar en þetta er lengsta verksmiðjuábyrgð sem bílaframleiðandi býður upp á í heiminum í dag. Opið verður í Öskju frá kl. 12-16 á laugardag og boðið verður upp á léttar veitingar.
Mest lesið Báðu um að fá að grafa upp Jónas Hallgrímsson Innlent Fleiri bitnir af hundunum Innlent Flugeldaverksmiðja sprakk í loft upp Erlent Enn ekkert spurst til Hákonar Innlent Deiliskipulag við Suðurlandsbraut, sundlaugar og fánar efst á dagskránni Innlent Lítið breyst á fimmtán árum Innlent Höggið verði mikið fyrir ríkisstjórnina segi þjóðin nei Innlent Sex úr sömu fjölskyldu skotnir til bana Erlent Flugmaður hjá Icelandair opnar bókhaldið Innlent Flugmenn lagt fram fleytilausn og staðan sögð erfið Innlent