Kvika frá Krýsuvík gæti gosið upp í Reykjavík Kristján Már Unnarsson skrifar 11. febrúar 2015 20:32
Eldgos gæti komið upp í jaðri Reykjavíkur, í sprungukerfi frá Krýsuvíkureldstöðinni. Þetta er mat Haraldar Sigurðssonar eldfjallafræðings, sem hvetur til þess að betra áhættumat verði gert fyrir Reykjavíkursvæðið. Í þættinum „Um land allt” á Stöð 2 í gærkvöldi var Haraldur spurður hver væri hættulegasta eldstöð Íslands. „Það er enginn vafi að það er eldstöðin sem er ekki byrjuð, - er ekki búin að fæðast. Það er einkenni á Íslandi, á mörgum gosum, að þau brjótast út á nýjum stað,” svaraði Haraldur. Í þættinum nefndi Haraldur nokkur nýleg dæmi um þetta; Heimaeyjargosið, Fimmvörðuháls og Skaftárelda. Jafnframt má benda á Holuhraunsgosið sem kom upp 40 kílómetrum frá Bárðarbungu. Haraldur rifjar upp þann óróa sem verið hefur á Krýsuvíkursvæðinu á undanförnum árum. „Krýsuvíkursvæðið er stór eldstöð. Sú eldstöð hefur sprungukerfi. Það sprungukerfi liggur rétt fyrir utan Reykjavík, - uppi í Heiðmörk.” Menn hafa löngum talið Reykjavíkursvæðið utan gosbeltisins en Haraldur telur að þar verði menn líka að gera ráð fyrir mögulegum eldsumbrotum, sem geti komið upp á yfirborðið í Heiðmörk. Því þurfi að fylgjast betur með Reykjavíkursvæðinu að þessu leyti og gera miklu betra áhættumat. Sprungusveimurinn frá Krýsuvíkursvæðinu teygir sig raunar inn í byggðina í Reykjavík. Þannig liggur ein sprungan í gegnum Norðlingaholtshverfið og með austurjaðri Rauðavatns. Þá má rifja upp að hnika þurfti til Árbæjarlaug í skipulagi á sínum tíma þegar í ljós kom sprunga sem liggur í gegnum Árbæjarhverfið. „Þær tengjast því, sennilega,” svaraði Haraldur spurður um hvort þessar sprungur tengdust Krýsuvíkurkerfinu. -Þannig að við gætum fengið eldstöð uppi í Árbæ? “Það er ekki óhugsanlegt,” svaraði eldfjallafræðingurinn. Á sjónvarpsvef Vísis má sjá þættina „Um land allt".
Bárðarbunga Tengdar fréttir Skjálftavirkni mælist undir eldstöðvum Snæfellsness Ný rannsókn þýskra vísindamanna sýnir að bæði Snæfellsjökull og Ljósufjöll eru virkar eldstöðvar. 9. febrúar 2015 19:13 Tunglfarar hefðu átt að æfa sig í Hrappsey Hrappsey á Breiðafirði er einstök í íslenskri jarðsögu og er bergið þar mjög sjaldgæft á jörðinni. 3. febrúar 2015 21:45 Flóðbylgja yfir Reykjavík ólíkleg frá Snæfellsjökli Engar vísbendingar eru um að sprengigos í Snæfellsjökli geti orðið svo öflugt að það valdi flóðbylgju í Reykjavík. 10. febrúar 2015 22:11 Almannavörnum tilkynnt um landris í Krýsuvík Landris mælist nú við Kleifarvatn og er talið að kvika geti verið að byggja upp þrýsting á litlu dýpi í eldstöðvakerfi Krýsuvíkur. Jarðvísindamenn hafa upplýst Almannavarnir og lögregluyfirvöld um stöðuna og mælt með því að sérstök aðgæsla verði höfð með svæðinu vegna hættu á lífshættulegum gufusprengingum. 27. nóvember 2009 18:41 Sprungur á Norðlingaholti Ein af stóru jarðskjálftasprungunum, sem ganga í gegnum Rauðavatn og Norðlingaholt, er nú vel sýnileg. Hún er það breið að nær væri að kalla gjá. Lægðin í landslaginu upp af Rauðavatni norðaustanverðu er í raun ein sprungan. Hún liggur síðan undir Suðurlandsveginn og áfram í gegnum nýbyggingasvæðið á Norðlingaholti. 8. júlí 2005 00:01 Hrollvekjandi að heyra um kvikustreymi undir Krýsuvík Hrollur fór um vistmenn og starfsfólk meðferðarheimilisins í Krýsuvík þegar þau heyrðu fréttir um kvikustreymi undir svæðinu og hættu á gufusprengingum. 30. nóvember 2009 18:47 Gagnrýnir Almannavarnir fyrir andvaraleysi Almannavarnir huga ekki að hættunni sem steðjar að höfuðborgarsvæðinu þegar eldsumbrot verða næst á Reykjanessvæðinu og yfirvöld hafa leyft byggingar á stöðum sem ekki ætti að byggja á. Þetta segir Haraldur Sigurðsson, einn helsti eldfjallasérfræðingur heims 2. júní 2012 19:45 Grannt fylgst með landrisi við Krýsuvík Jarðvísindamenn fylgjast nú grannt með skjálftahrinum og landrisi við Krýsuvík og hafa upplýst almannavarnir um þróun mála. Aukinn þrýsingur í jarðskorpunni þar undir er talinn geta stafað annaðhvort af kvikuinnstreymi eða breytingum í jarðhitakerfum. 30. nóvember 2010 12:15 Telur umbrot í Krýsuvík geta leitt til sprungugoss í Heiðmörk Haraldur Sigurðsson, einn þekktasti og virtasti eldfjallafræðingur Íslendinga, telur að umbrotin í Krýsuvík geti hugsanlega leitt til eldgoss fyrir ofan Hafnarfjörð, í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn. Í grein á bloggsíðu sinni fjallar Haraldur um hræringarnar sem hófust með landrisi á Krýsuvíkursvæðinu fyrir þremur árum en þær voru þess eðlis að jarðvísindamenn töldu ástæðu til að upplýsa almannavarnir og lögregluyfirvöld um stöðuna. 27. maí 2012 09:30 Mest lesið Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Innlent Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Innlent Ítalski baróninn á ekki vatnið Innlent Fleiri fréttir Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Sjá meira
Skjálftavirkni mælist undir eldstöðvum Snæfellsness Ný rannsókn þýskra vísindamanna sýnir að bæði Snæfellsjökull og Ljósufjöll eru virkar eldstöðvar. 9. febrúar 2015 19:13
Tunglfarar hefðu átt að æfa sig í Hrappsey Hrappsey á Breiðafirði er einstök í íslenskri jarðsögu og er bergið þar mjög sjaldgæft á jörðinni. 3. febrúar 2015 21:45
Flóðbylgja yfir Reykjavík ólíkleg frá Snæfellsjökli Engar vísbendingar eru um að sprengigos í Snæfellsjökli geti orðið svo öflugt að það valdi flóðbylgju í Reykjavík. 10. febrúar 2015 22:11
Almannavörnum tilkynnt um landris í Krýsuvík Landris mælist nú við Kleifarvatn og er talið að kvika geti verið að byggja upp þrýsting á litlu dýpi í eldstöðvakerfi Krýsuvíkur. Jarðvísindamenn hafa upplýst Almannavarnir og lögregluyfirvöld um stöðuna og mælt með því að sérstök aðgæsla verði höfð með svæðinu vegna hættu á lífshættulegum gufusprengingum. 27. nóvember 2009 18:41
Sprungur á Norðlingaholti Ein af stóru jarðskjálftasprungunum, sem ganga í gegnum Rauðavatn og Norðlingaholt, er nú vel sýnileg. Hún er það breið að nær væri að kalla gjá. Lægðin í landslaginu upp af Rauðavatni norðaustanverðu er í raun ein sprungan. Hún liggur síðan undir Suðurlandsveginn og áfram í gegnum nýbyggingasvæðið á Norðlingaholti. 8. júlí 2005 00:01
Hrollvekjandi að heyra um kvikustreymi undir Krýsuvík Hrollur fór um vistmenn og starfsfólk meðferðarheimilisins í Krýsuvík þegar þau heyrðu fréttir um kvikustreymi undir svæðinu og hættu á gufusprengingum. 30. nóvember 2009 18:47
Gagnrýnir Almannavarnir fyrir andvaraleysi Almannavarnir huga ekki að hættunni sem steðjar að höfuðborgarsvæðinu þegar eldsumbrot verða næst á Reykjanessvæðinu og yfirvöld hafa leyft byggingar á stöðum sem ekki ætti að byggja á. Þetta segir Haraldur Sigurðsson, einn helsti eldfjallasérfræðingur heims 2. júní 2012 19:45
Grannt fylgst með landrisi við Krýsuvík Jarðvísindamenn fylgjast nú grannt með skjálftahrinum og landrisi við Krýsuvík og hafa upplýst almannavarnir um þróun mála. Aukinn þrýsingur í jarðskorpunni þar undir er talinn geta stafað annaðhvort af kvikuinnstreymi eða breytingum í jarðhitakerfum. 30. nóvember 2010 12:15
Telur umbrot í Krýsuvík geta leitt til sprungugoss í Heiðmörk Haraldur Sigurðsson, einn þekktasti og virtasti eldfjallafræðingur Íslendinga, telur að umbrotin í Krýsuvík geti hugsanlega leitt til eldgoss fyrir ofan Hafnarfjörð, í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn. Í grein á bloggsíðu sinni fjallar Haraldur um hræringarnar sem hófust með landrisi á Krýsuvíkursvæðinu fyrir þremur árum en þær voru þess eðlis að jarðvísindamenn töldu ástæðu til að upplýsa almannavarnir og lögregluyfirvöld um stöðuna. 27. maí 2012 09:30