Aðalfundur SVFR verður haldinn 21. febrúar Karl Lúðvíksson skrifar 10. febrúar 2015 11:25
Eitt af vorverkum SVFR er að halda aðalfund félagsins en þessi fundir verða oft líflegir og þá sérstaklega þegar dregur nær kosningum um stjórnarsæti. Hér er tilkynning frá félaginu: "Aðalfundur Stangaveiðifélags Reykjavíkur verður haldinn laugardaginn 21. febrúar 2015. Fundurinn fer fram í Rafveituheimilinu í Elliðaárdal og hefst kl. 16:00. Fram fara hefðbundin aðalfundarstörf en dagskrá fundarins verður birt þegar nær dregur. Á aðalfundinum verður formaður SVFR kjörinn til eins árs og kosið verður um sæti þriggja stjórnarmanna til tveggja ára. Framboðum til stjórnar skal skila skriflega til skrifstofu félagsins eigi síðar en fjórtán dögum fyrir aðalfund. Allir skuldlausir félagsmenn 18 ára og eldri eru kjörgengir til stjórnarkjörs. Starfsfólk og stjórn SVFR hvetja félagsmenn til að fjölmenna á fundinn en rétt til setu á fundinum hafa allir félagsmenn sem eru skuldlausir við félagið. Atkvæðisrétt hafa einungis félagsmenn 18 ára og eldri. KveðjaStjórn SVFR"
Stangveiði Mest lesið Arnarvatnsheiðin kemur vel undan vetri Veiði Veiddu karlana undir borðið Veiði Steinsmýrarvötn hafa verið að gefa vel Veiði Kastkeppni á skemmtileikum Veiði Elliðaárnar yfir 600 laxa Veiði Allt um veiðihnúta Veiði Þegar litlu flugurnar gefa best Veiði Refaveiðar í uppáhaldi hjá Maríu Veiði Veiðir ufsa á flugustöng við Ægissíðuna Veiði Maðkurinn er kominn yfir 200 krónur stykkið Veiði