Körfubolti

Matthías Orri: Deildin yrði ekki eins án stórveldis eins og ÍR

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Matthías Orri verður með í kvöld.
Matthías Orri verður með í kvöld. vísir/pjetur
ÍR getur afgreitt fallbaráttuna í Dominos-deild karla í körfubolta í kvöld þegar liðið tekur á móti Skallagrími á heimavelli sínum í Hertz-hellinum.

ÍR er með tíu stig eins og Fjölnir en á tvo leiki eftir. Fjölnismenn eiga bara einn eftir. Skallagrímur er með átta stig og á tvo leiki eftir.

Með sigri í kvöld fellir ÍR lið Skallagríms á stigum og þá er liðið yfir í innbyrðis viðureignum sínum gegn Fjölni. Grafarvogsmenn þurfa því í raun að mæta í Breiðholtið í kvöld og styðja Skallagrím til sigurs.

Matthías Orri Sigurðarson, leikstjórnandi ÍR, meiddist í byrjun leiks gegn Grindavík 15. febrúar og missti af síðustu tveimur leikjum ÍR gegn Grindavík sem tapaðist og Snæfelli sem vannst.

„Ég verð með í kvöld. Það er ekkert annað í boði. Ég læt bara adrenalínið sjá um þetta og spila eins og ekkert sé að mér,“ segir Matthías Orri í samtali við Vísi.

Matthías meiddist þegar hann fór upp í skot gegn Grindavík og lenti á fæti Ómars Sævarssonar með þeim afleiðingum að hann sneri upp á ökklann.

„Ég er orðinn þokkalegur. Ég æfði í gær og fyrradag og hef verið nokkuð góður. Þetta virtist bara vera venjulegur snúningur en það var beinmar sem hélt mér lengur frá,“ segir Matthías, en er hann alveg klár í slaginn?

„Ég er svona 70 prósent heill en þegar komið er í leikinn spilar maður eins og ekkert sé að.“

Leikstjórnandinn öflugi, sem hefur skorað 19,9 stig að meðaltali í leik og gefið 5,6 fráköst, segir ekkert annað í boði en að vinna í kvöld.

„Það kemur ekkert annað til greina. Dominos-deildin verður ekki eins án stórveldis eins og ÍR. Við gerum allt sem við getum til að halda okkur upp fyrir stuðningsmenn okkar og deildina,“ segir Matthías Orri.

„Ég býst ekki við neinu öðru en að Breiðhyltingar fjölmenni á leikinn og Skallagrímsmenn líka. Það verður skammarlegt ef húsið verður ekki fullt,“ segir Matthías Orri Sigurðarson.

Aðrir leikir kvöldsins:

Keflavík - Snæfell, 19.15

Njarðvík - Stjarnan, 19.15

Leikur ÍR og Skallagríms verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 3 í kvöld klukkan 19.00.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×