Körfubolti

Leikmaður ÍR sem hneig niður í gærkvöldi er á góðum batavegi

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Friðrik var fljótlega fluttur á sjúkrahús.
Friðrik var fljótlega fluttur á sjúkrahús. vísir/sáp
Óhugnalegt atvik kom upp í miðjum leik Stjörnunnar og ÍR í lokaumferð Dominos-deild karla í körfubolta í gærkvöldi.

Friðrik Hjálmarsson, leikmaður ÍR, hneig niður rétt eftir að hann var tekinn af velli og átti erfitt með andardrátt.

Sjá einnig:Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - ÍR 101-88 | Stjarnan endar í fimmta sæti

Bjarni Magnússon, þjálfari ÍR, sagði við Vísi í gærkvöldi að Friðrik hafi verið að glíma við óeðlilegt hjartaflökt að undanförnu og svipað atvik hafi átt sér stað áður.

Sjúkrabíll var kallaður til í Ásgarð og var Friðrik fluttur á sjúkrahús aðeins nokkrum mínútum eftir að hann hneig niður.

Allt horfir þó til betri vegar hjá Hjálmari. Faðir hans, Hjálmar Sigurþórsson, sendi Vísi skeyti og vildi koma á framfæri að Friðrik sé á góðum batavegi.

Hjálmar vill einnig koma fram þökkum til allra þeirra sem hlúðu að syni sínum og þá sérstaklega starfsmönnum íþróttahússins í Ásgarði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×