Justin Shouse mun spila sitt áttunda tímabil í Garðabænum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. apríl 2015 16:30 Justin Shouse. Vísir/Ernir
Körfuknattleiksdeild Stjörnunnar kynnti nýjan leikmann, Tómas Heiðar Tómasson, á blaðamannafundi í dag en þar kom líka fram að Justin Shouse ætlar að spila áfram með liðinu. Auk þess að semja við Tómas hefur Stjarnan framlengt eða er við það að ganga frá samningum við alla þá leikmenn sem léku með félaginu á þessu tímabili, þar með talin Justin Shouse. Stjörnuliðið missir þó tvo leikmenn. Jón Orri Kristjánsson mun fara upp á Akranes og Dagur Kár Jónsson er að leiðinni í skóla í Bandaríkjunum. Justin Shouse spilaði fyrst með Stjörnunni tímabilið 2008 til 2009 og var því að klára sitt sjöunda tímabil í Garðabænum í vetur. Justin Shouse var með 19,9 stig og 5,9 stoðsendingar að meðaltali í deildarkeppninni og með 18,6 stig og 5,8 stoðsendingar að meðaltali í úrslitakeppninni þar sem Stjarnan datt út fyrir Njarðvík eftir oddaleik í Njarðvík. Justin var valinn besti leikmaður bikarúrslitaleiksins þar sem hann var með 19 stig og 10 stoðsendingar í 85-83 sigri á KR í Laugardalshöllinni. Þetta var í þriðja skiptið sem hann verður bikarmeistari með Stjörnunni (2009, 2013 og 2015). Justin Shouse verður 34 ára í september en hann hefur spilað á Íslandi frá árinu 2005 þegar hann kom til 1. deildarliðs Drangs frá Vík í Mýrdal.
Dominos-deild karla Mest lesið Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ Enski boltinn Fyrrum markmaður Arsenal og Juventus lést í bílslysi Fótbolti Stuðningsmenn kosta Þór og Víking hundruð þúsunda Íslenski boltinn KR - Keflavík | Oddaleikur í Vesturbænum Körfubolti Oddaleikurinn færður vegna árshátíðar Körfubolti „Þú ert farinn að verða þybbinn“ Fótbolti Gervigreindin gaf Alberti engan séns hjá Bayern Fótbolti Fiorentina - Crystal Palace | Eiga Albert og félagar séns? Fótbolti Launin ekki aðalatriði og bónus að hafa fjölskylduna nálægt Íslenski boltinn „Ég get ekki breytt þessu“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir KR - Keflavík | Oddaleikur í Vesturbænum Luka Doncic vann áfrýjunina og er gjaldgengur fyrir öll verðlaun NBA Oddaleikurinn færður vegna árshátíðar Curry hélt stríðsmönnunum á lífi Völdu kærustu hennar líka númer eitt Uppgjörið: Keflavík-Valur 88-81 | Keflavík tryggði sér oddaleik J. Cole slítur samningi sínum í Kína Olnbogi Ægis brotnaði „Þeir hefðu átt að henda honum út úr húsi fyrir þetta“ „Brugðumst vel við í krefjandi aðstæðum“ „Ætluðum okkur lengra en stoltur af liðinu“ „Ótrúlegar 50 mínútur af körfubolta“ Uppgjörið: KR-Stjarnan 115-118 | Stjarnan vann án Ægis og eftir tvær framlengingar Uppgjörið: Njarðvík-Grindavík 84-91 | Grindvíkingar í undanúrslit Ægir fluttur í burtu í sjúkrabíl Hamar/Þór einum sigri frá Bónus eftir sigurkörfu á lokasekúndu KR með bakið upp við vegg: „Erum ekki klárir í að fara í sumarfrí“ Uppgjörið:Keflavík-KR 101-65: Keflavíkurkonur tryggðu sér oddaleik „Djöfull er íslenska þjóðin orðin geðveik“ Læknirinn yfirgefur höllina „Gaf frá mér hljóð sem enginn maður á mínum aldri á að gefa frá sér“ Tryggvi tókst á við Barcelona Mannleg mistök innifalin og karfan góð og gild Segir svindl að karfa Kára standi: „Ég upplifi þetta sem algjöra þvælu“ Sjáðu lygilega körfu Kára sem fékk bara 0,4 sekúndur Valur - Keflavík 79-78 | Sturluð sigurkarfa Kára Tindastóll - ÍR 125-87 | Fyrstir inn í undanúrslit Elvar og Martin í miklu stuði Uppgjör: Stjarnan - KR 104-80 | Stjarnan setti KR á grillið í seinni hálfleik Hilmar Smári: Mjög stoltur af mínum mönnum Sjá meira