Shelby Ford Raptor er 700 hestöfl Finnur Thorlacius skrifar 14. apríl 2015 10:14 Shelby Ford F-150 Raptor ætti að komast um ófærurnar og það hratt.
Shelby breytingafyrirtækið sem stofnað var af Carroll Shelby hefur í gegnum tíðina breytt Ford bílum og gert þá af kraftabílum. Það á vissulega við þennan Ford-150 Raptor, sem þó var mjög öflugur bíll fyrir breytingar Shelby. Ford-150 Raptor er í grunninn mjög hæfur pallbíll fyrir utanvegaakstur, með mikla veghæð, slaglanga fjöðrun og 411 hestafla vél. Ekki þótti Shelby það nóg og er þessi úgáfa þeirra ríflega 700 hestöfl. Shelby hefur einnig breytt fjöðrun bílsins og hafi hann áður verið hæfur til utanvegaaksturs er hann nú algjört skrímsli í glímunni við möl og grjót. Shelby breytti innanrými bílsins mikið og er þar lúxusinn allsráðandi. Aðeins verða framleidd 50 eintök af þessum bíl og verðið hefur næstum tvöfaldast frá hefðbundinni gerð Ford Raptor. Hann kostar 90.000 dollara, eða 12,5 milljónir króna, en venjulegur Raptor kostar 46.195 dollara.
Mest lesið Hellisheiði lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Innlent Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Innlent Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Innlent