Ekkert félag hefur beðið lengur en Tindastóll Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. apríl 2015 14:07 Viðar Ágústsson í leiknum þar sem Stólarnir tryggðu sér sæti í lokaúrslitunum. Vísir/Stefán
Tindstóll spilar í kvöld sinn fyrsta leik í lokaúrslitum í fjórtán ár þegar liðið heimsækir ríkjandi Íslandsmeistara KR í DHL-höllina í Vesturbænum. Leikurinn í kvöld verður sýndur beint á Stöð 2 Sport og hefst útsendingin klukkan 19.00. Leikurinn sjálfur hefst klukkan 19.15 Tindastóll var síðast í lokaúrslitunum árið 2001 þegar liðið tapaði 3-1 fyrir Loga Gunnarssyni og félögum í Njarðvík. Stólarnir unnu samt síðasta útileik sinn í lokaúrslitum 2001 en þegar þeir spilltu sigurhátíð Njarðvíkinga með þriggja stiga sigri á Njarðvík 96-93 14. apríl þegar Njarðvíkingar gátu tryggt sér titilinn í Ljónagryfjunni. Njarðvíkingar fóru síðan á Krókinn í næsta leik, 17. apríl 2001, unnu 25 stiga sigur og tóku Íslandsbikarinn með sér til baka. Síðan eru liðnir rétt rúmur 171 mánuður eða alls 5116 dagar frá því að Tindastólsliðið stóð á stærsta sviði íslenska körfuboltans. Með því að komast fyrst aftur í lokaúrslitin í ár, fjórtán árum síðar, eru Stólarnir orðnir það lið í þriggja áratuga sögu úrslitakeppninnar sem hefur þurft að bíða lengst á milli úrslitaeinvíga. Tindastóll bætti með þessu met KR-inga, sem höfðu lengst allra, beðið í átta ár á milli tveggja úrslitaeinvíga sinna á tíunda áratugnum. Haukarnir eiga reyndar möguleika á að bæta metið í næstu framtíð en nú eru liðin 22 ár síðan að Haukarnir spiluðu síðast um Íslandsmeistaratitilinn. Stólarnir skildu Haukana eftir í undanúrslitunum í ár.Lengsta bið á milli úrslitaeinvíga: 14 ár - Tindastóll (2001-2015) 8 ár - KR (1990-1998) 7 ár - KR (2000-2007) 6 ár - Grindavík (2003-2009) 5 ár - Valur (1987-1992) 5 ár - Haukar (1988-1993) 4 ár - Njarðvík (2002-2006)
Dominos-deild karla Mest lesið Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Marlena vann Bakgarðshlaupið: „Ég hljóp bara“ Sport Fær sér ís í heita pottinum eftir tæplega 250 kílómetra hlaup Sport Haaland kastaði boltanum í hnakkann á Gabriel eftir jöfnunarmark City Fótbolti Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Enski boltinn Keane segir Arteta að taka lyfin sín Enski boltinn Stig tekin af liði Ásdísar og félagið gæti hætt Fótbolti BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Enski boltinn Viðar Ari fjórbrotinn Fótbolti Sér eftir að hafa valið Val fram yfir KR Íslenski boltinn Fleiri fréttir Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Sjá meira