Körfubolti

Keflavík búið að ganga frá sínum þjálfaramálum

Sigurður skrifar undir í gær.
Sigurður skrifar undir í gær. mynd/keflavík
Körfuknattleiksdeild Keflavíkur tilkynnti um ráðningu á þjálfurum meistaraflokka félaganna í gær.

Sigurður Ingimundarson hættir að þjálfa kvennalið félagsins en tekur alfarið við karlaliðinu. Sigurður tók við karlaliðinu um mitt síðasta tímabil af Helga Jónasi Guðfinnssyni.

Margrét Sturlaugsdóttir og Marín Karlsdóttir munu taka við þjálfun kvennaliðsins næsta vetur.

Svo fékk félagið Magnús Þór Gunnarsson aftur heim í gær og Valur Orri Valsson framlengdi samning sinn við félagið til þriggja ára.

Lykilmaður í kvennaliðinu, Bryndís Guðmundsdóttir, er einnig búin að skrifa undir nýjan tveggja ára samning við félagið.

Margrét og Marín stýra kvennaliðinu.mynd/keflavík



Fleiri fréttir

Sjá meira


×