Magnús aftur í Keflavík: Síðustu félagsskiptin á ferlinum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. maí 2015 20:42 Magnús Þór Gunnarsson. Vísir/Daníel
Magnús Þór Gunnarsson hefur ákveðið að koma aftur heim og spila með Keflavík í Dominos-deild karla í körfubolta á næstu leiktíð en þetta staðfesti hann við Vísi í kvöld. „Það segja það allir að ég eigi bara að vera í Keflavík en tíminn sem ég var í burtu var rosalega skemmtilegur og lærdómsríkur," sagði Magnús Þór. „Það lítur beinast við að koma heim, taka eitt, tvö, þrjú, fjögur tímabil og hætta síðan," sagði Magnús sem er orðinn 34 ára gamall. „Ég reikna fastlega með því að þetta séu félagsskiptin á ferlinum. Ég reikna bara með því að fara að þjálfa og reyna að kenna öðrum það sem ég kann. Þetta er að komast á endastoppistöð og maður verður að trappa sig niður," sagði Magnús. Magnús Þór er að koma heim í þriðja sinn en hann er uppalinn hjá Keflavíkurliðinu og hefur unnið fjóra Íslandsmeistaratitla með félaginu. Að þessu sinni var Magnús aðeins í burtu í eitt tímabil. Magnús Þór lék með Grindavík og Skallagrím á síðustu leiktíð og var með 13,9 stig og 2,6 stoðsendingar í 20 leikjum, 12,4 og 2,3 með Grindavík og 15,0 og 2,7 með Skallagrím. Magnús yfirgaf Keflavík í fyrra skiptið eftir 2007-08 tímabilið og spilaði þá í Danmörku og með Njarðvík áður en hann kom aftur til Keflavíkur. Keflavík er enn án þjálfara en sú staða hafði ekki áhrif á ákvörðun Magnúsar. „Það er ekki alveg komið á hreint hver þjálfar liðið. Ég veit möguleikana sem eru í boði og það angrar mig ekki. Ég er sáttur með einn af þessum möguleikum sem eru í boði," sagði Magnús.
Dominos-deild karla Mest lesið Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Marlena vann Bakgarðshlaupið: „Ég hljóp bara“ Sport Fær sér ís í heita pottinum eftir tæplega 250 kílómetra hlaup Sport Haaland kastaði boltanum í hnakkann á Gabriel eftir jöfnunarmark City Fótbolti Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Enski boltinn Í beinni: Fjölnir - Afturelding | Barist um farmiða í úrslitaleikinn Íslenski boltinn Stig tekin af liði Ásdísar og félagið gæti hætt Fótbolti Keane segir Arteta að taka lyfin sín Enski boltinn BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Enski boltinn Viðar Ari fjórbrotinn Fótbolti Fleiri fréttir Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Sjá meira