Sport

Hitaðu upp fyrir Goðsagnaþátt kvöldsins með markasyrpu Gumma Ben

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Guðmundur Benediktsson verður til umfjöllunar í þættinum Goðsagnir efstu deildar sem sýndur verður á Stöð 2 Sport í kvöld klukkan 21.00.

Gummi Ben átti frábæran feril á Íslandi en hann skoraði 57 mörk í 237 leikjum í efstu deild. Nokkur þeirra má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.

Þrátt fyrir að vera mikið meiddur varð hann fimm sinnum Íslandsmeistari og þrisvar sinnum bikarmeistari á sínum ferli.

Þá var Gummi Ben kjörinn leikmaður ársins 1999 þegar KR vann titilinn í fyrsta skipti í rúm 30 ár. Liðið varð einnig bikarmeistari það ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×