Sex laxar á land á fyrsta degi í Laxá í Leirársveit Karl Lúðvíksson skrifar 18. júní 2015 08:42 Mynd: www.laxaleir.is
Laxá í Leirársveit opnaði í gær og þrátt fyrir að vatnsstaðan í ánni væri nokkuð há var nokkuð líf í ánni. Vegna mikilla snjóalaga hafa verið töluverðar leysingar í hlýindum síðustu daga og það á varla eftir að breytast mikið núna þegar bæði hlýnar og rignir. Það góða við vatnsstöðuna er að laxinn verður fljótur að fara upp ánna og dreifa sér en neikvæða hliðin er að mikið vatn slær út nokkra veiðistaði. Allir laxarnir sem komu á land veiddust í Laxfossi en auk þess sluppu nokkrir af á öðrum stöðum. Flestir af löxunum sem náðust voru grálúsugir. Af öðrum ám má nefna að veiðin í Blöndu er komin í 59 laxa en þar er ennþá aðeins veitt á fjórar stangir og er þetta alveg viðunandi veiði miðað við árstíma. Þverá og Kjarrá er komin í 62 laxa en þar hafa veiðimenn orðið varir við auknar göngur sem færir meira líf í ánna en holl sem hóf veiðar í gær náði 10 löxum á fyrstu tveimur vöktunum. Laugardalsá er líka komin af stað og þar veiddust nokkrir vænir laxar í opnun og fleiri sýndu sig í ánni.
Stangveiði Mest lesið Ytri Rangárnar bæta við sig Veiði Besti tíminn laus í Soginu Veiði Elliðaárnar undir meðaltali síðustu ára Veiði Þverá og Kjarrá opna með ágætum Veiði Elliðavatn opnar á fimmtudag Veiði Lækka um fjórðung í Andakíl Veiði Langá opnaði í morgun með 13 löxum á 3 tímum Veiði Haukadalsá og Straumfjarðará að verða uppseldar Veiði Hvað sem þú gerir ekki gleyma flugnaneti Veiði Veiðimönnum boðið í Hlíðarvatn Veiði