Á pungnum og við mikinn svita (og hita) geta menn fengið kláða, útbrot og í kjölfarið sveppasýkingu
Hér eru nokkur ráð til að minnka líkur á því:
- Vertu í víðum nærfatnaði svo andi um lim og pung
- Vertu í bómullar nærfatnaði frekar en gerviefnum
- Þurrkaðu þér vel og vandlega um klof og pung og eistu eftir baðferð
- Passaðu að fótasveppur smitist ekki á pung með því að fara fyrst í sokka áður en ferð í nærbuxur og hugsaðu vel um fæturnar svo fáir ekki fótsvepp
- Notaðu sápu sem er ekki með ilmefnum (nú eða bara sleppa alveg sápunni)
- Notaðu þvottaefni fyrir viðkvæma húð á nærfötin þín

Ætli þetta falli ekki undir flokkinn -allt er nú til-.
Fresh balls á að berast beint á punginn, koma í veg fyrir að hann svitni og inniheldur ekki paraben.
Hins vegar skilur þetta eftir sig hvíta slikju sem er kannski ekki girnilega ef menn ætla á heitt stefnumót sama dag.

Ætli það sé ekki vissara að sprey bara smá fyrst áður en allur pungurinn er húðaður svo ekki verði sviði eða ofkæling.

Þetta er ekki hið sígilda frá Johnson&Johnson heldur er þetta Man powder en rétt eins og með fyrrgreinda rassapúðrið ferðast þetta aðeins um umhverfi sitt svo það er vissara að vanda sig þegar pungurinn er baðaður.

Svo er það kannski líka spurning um að skola sig bara reglulega og þerra vel á eftir svo ekki sitji menn tímunum saman pungsveittir.
Ef pungurinn er orðinn sveittur þá getur það verið ágætismerki um að standa upp frá skrifborðinu og fá sér stuttan göngutúr til að kæla niður tólið.