Körfubolti

Grindavík búið að finna Kana fyrir næsta tímabil | Páll Axel snýr aftur

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Harold í baráttunni við Jabari Parker, núverandi leikmann Milwaukee Bucks í NBA-deildinni.
Harold í baráttunni við Jabari Parker, núverandi leikmann Milwaukee Bucks í NBA-deildinni. vísir/getty
Körfuknattleiksdeild Grindavíkur hefur gert samning við Bandaríkjamanninn Hector Harold. Þetta kemur fram á heimasíðu Grindavíkur.

Harold er 24 ára gamall og nýútskrifaður úr Vermont-háskólanum sem er 1. deildar skóli í America East deildinni. Hann var með 8,1 stig og 3,9 fráköst að meðaltali í leik á síðasta tímabili.

Harold er 2,01m á hæð og mun spila stöðu miðherja hjá Grindavík en hann spilaði sem framherji í háskóla.

Hann er sagður fjölhæfur leikmaður með góða boltatækni og sterkur í vörninni. Harold kemur til landsins í ágúst.

Þá er Páll Axel Vilbergsson kominn aftur til Grindavíkur en hann hefur leikið með Skallagrími í Borgarnesi undanfarin tvö tímabil.

Páll Axel, sem er 37 ára, er stórt nafn í sögu Grindavíkur en hann varð tvisvar sinnum Íslandsmeistari með liðinu á sínum tíma (1996 og 2012).

Páll Axel var með 14,2 stig og 5,7 fráköst að meðaltali í leik með Skallagrími á síðasta tímabili en hann setti niður 40,0% af þriggja stiga skotum sínum í vetur. Páll Axel er ein besta skytta sem Ísland hefur átt en hann er eini leikmaðurinn í sögu úrvalsdeildarinnar sem hefur sett niður 1000 þrista.

Grindavík hafnaði í 8. sæti Domino's deildarinnar á síðasta tímabili en liðið tapaði 3-0 fyrir KR í fyrstu umferð úrslitakeppninnar.

Páll Axel með Íslandsbikarinn ásamt Guðmundi Bragasyni, núverandi aðstoðarþjálfara og fyrrverandi fyrirliða Grindavíkur.vísir/ÓskarÓ



Fleiri fréttir

Sjá meira


×