Peugeot 308 GTi er 270 hestöfl Finnur Thorlacius skrifar 22. júní 2015 10:49 Snaggaralegur lítill kraftaköggull, Peugeot 308 GTi.
Í lok þessa mánaðar mun Peugeot kynna nýjan kraftabíl sem byggður er á bíl ársins í Evrópu í fyrra, Peugeot 308. Hann fær stafina GTi í enda nafns síns og það eitt eru sterk skilaboð um það við hvaða bíl hann á að keppa, þ.e. Volkswagen Golf GTI, enda svipaður af stærð. Peugeot 308 GTi verður þó mun öflugri bíll en Volkswagen Golf GTI og munar þar einum 60 hestöflum. Öll þau 270 hestöfl sem í Peugeot 308 GTi er fást úr einungis 1,6 lítra sprengirými, en með aðstoð öflugrar forþjöppu. Bíllinn er sléttar 6 sekúndur í hundraðið. Segja má ef til vill að helsti samkeppnisbíll Peugeot 308 GTi sé Seat Leon Cupra sem fá má með 261 eða 276 hestafla vélum. Einnig verður hægt að fá Peugeot 308 GTi með 250 hestafla vél. Peugeot 308 GTi mun standa neðar á vegi en hefðbundinn Peugeot 308, lengra er á milli hjóla, stærri bremsur og vindskeiðar bílsins tryggja að hann klýfur loftið betur. Auk þess eru aðalljós bílsins af LED-gerð og meira er lagt í innréttingu bílsins og sætin með rauðstöguðu Alcantara- og leðuráklæði.
Mest lesið Kannast ekki við að aðgengi að bílastæðum sé skert Innlent Íhuga að fara inn í Íran til að ná í auðgað úran Erlent Mojtaba Khamenei særður en óhultur Erlent Segir Ísland geta klárað viðræður á einu og hálfu ári Erlent Forsprakki Noma sakaður um andlegt og líkamlegt ofbeldi Erlent Birta sönnunargögn um að Bandaríkjamenn hafi verið ábyrgir fyrir árásinni Erlent Sjái þegar merki um að forspá um klofningu þjóðarinnar standist Innlent Brynja Dan í óvissu um oddvitasætið í Garðabæ Innlent Stúlkan sem leitað var að er fundin Innlent Hafi grandað fjölda skipa á örfáum klukkustundum Erlent