Fleiri lokatölur úr laxveiðiánum Karl Lúðvíksson skrifar 17. september 2015 14:41 Mynd: www.hreggnasi.is
Nú liður að lokum veiðitímabilsins og það verður ekki annað sagt en að frábært sumar sé senn að lokum komið. Það þorði engin í raun að spá fyrir um það hvernig veiðin yrði í sumar og það af augljósum ástæðum enda var veiðin í fyrra, eins og oft hefur komið fram, með eindæmum léleg. Það er ekki þannig með sumarið 2015 sem fer í bækurnar sem eitt af bestu sumrum frá því að skráningar hófust. Lokatölur berast nú frá ánum en áfram er veitt í nokkrum sjálfbæru ánum og Rangárnar loka ekki fyrr en í október svo það er ennþá fínn tími framundan fyrir þá sem hafa ekki ennþá sefað veiðigleðina eftir sumarið. Ef við skoðum aðeins lokatölur úr þeim ám sem þegar hafa lokað þá er Norðurá með 2886 laxa en var með 924 laxa í fyrra. Þverá/Kjarrá lýkur sumrinu með 2364 löxum en var með 1195 laxa í fyrra. Haffjarðará er með 1660 laxa en 821 lax í fyrra. Laugardalsá er með 521 lax í sumar en lokatölur vantar frá því í fyrra. Búðardalsá er með 466 laxa á móti 247 löxum í fyrra. Straumarnir eru með 339 laxa en þar vantar líka lokatölur fyrir sumarið 2014. Heildarlistinn yfir veiðina í sumar er að finna á heimasíðu Landssambands Veiðifélaga og er hann uppfærður vikulega og hann má finna í heild sinni hér.
Mest lesið Þingvallavatn undir yfirborðinu - töfraveröld Veiði 112 sentimetra stórlax úr Vatnsdalsá Veiði Síðasta helgin til rjúpnaveiða framundan Veiði Laxá í Kjós gaf 137 laxa í liðinni viku Veiði Gæsaveiðin gengur vel um allt land Veiði Framleiða sjónvarpsþætti um sportveiði Veiði Góð veiði á Skagaheiði Veiði 8408 laxar komnir úr Ytri Rangá Veiði Túnin víða svört af gæs Veiði Ytri Rangá komin í 409 laxa Veiði