Cadillac Escalade með 600 hestafla Corvettu-vél Finnur Thorlacius skrifar 10. september 2015 11:30 Cadillac Escalade.
Margir bílaframleiðendur ætla á næstunni að setja á markað mjög öfluga lúxusjeppa og ekki má Cadillac missa af þeirri lest. Svo virðist vera miðað við þau áform fyrirtækisins að setja í bílinn sömu vél og er að finna í Chevrolet Corvette Z06, en hún skilar 600 hestöflum. Breytingafyrirtækið Hennessey í Bandaríkjunum hefur fram að þessu séð um að útbúa ofuröflugar útfærslur af Escalade, en nú ætlar Cadillac bara að sjá um það sjálft. Þessi öfluga vél úr Corvette Z06 er Cadillac-mönnum ekki alveg ókunn, en hana má einnig finna í Cadillac CTS-V. Escalade mun í staðinn fórna 420 hestafla, 6,2 lítra V8 L86 vél sinni, en nýja vélin er reyndar með sama sprengirými. Átta gíra sjálfskipting hjálpar til að færa allt aflið til dekkjanna og bíllinn fær stillanlega fjöðrun. Búast má við því að þessi nýi öflugi Escalade muni kosta hátt í 90.000 dollara, en ódýrasta gerð hans kostar nú frá 72.970 dollurum í Bandaríkjunum. Með þessum 600 hestöflum slær Escalade í afli við jeppum eins og Mercedes Benz GL63 AMG sem er 550 hestöfl, Range Rover Supercharged með 510 hestöfl og Porsche Cayenne Turbo S sem er 570 hestöfl. Vafalaust verður hann þó áfram lang slakastur þeirra í akstri og flestir þeirra hinna verða líklega að auki fljótari úr sporunum.
Mest lesið Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum Erlent