Nýliðarnir búnir að bursta bæði Keflavík og Njarðvík í haust Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. september 2015 14:00 Erik Olson, þjálfari FSu. Mynd/youtube.com/ISLkarfan
Nýliðar FSu eru komnir í fjögurra liða úrslit Lengjubikars karla í körfubolta en þetta er í fyrsta sinn í sögu Fyrirtækjabikars karla þar sem Selfoss-liðið er meðal hinna fjögurra fræknu. FSu komst á úrslitahelgi Lengjubikarsins með því að vinna 35 stiga sigur á Njarðvík í Iðu í gærkvöldi en þetta var fjórði sigur FSu-liðsins í röð í keppninni. Það sem vekur ekki síður athygli er að FSu er búið að bursta bæði Reykjanesbæjarliðin á einni viku því FSu vann 31 stigs sigur á Keflavík viku fyrr. Í millitíðinni vann FSu síðan sigur á 1. deildarliðum Skallagríms og Breiðabliks. Það eru hinsvegar sigrarnir á Keflavík og Njarðvík sem standa upp úr enda ekki mörg félög til sem hafa náð að vinna 30 stiga sigri á þeim báðum á einni viku. FSU vann 112-91 sigur á Keflavík 22. september þar sem Cristopher Caird skoraði 39 stig, Christopher Anderson var með 29 stig og Hlynur Hreinsson skoraði 16 stig. Í 113-78 sigri FSu á Njarðvík í gær þá var Christopher Anderson með 27 stig, Cristopher Caird skoraði 20 stig, Ari Gylfason var með 18 stig og Birkir Víðisson skoraði 17 stig. FSu skoraði 19 þriggja stiga körfur úr 40 tilraunum í sigrinum á Keflavík (48 prósent) og 16 þriggja stiga körfur úr 36 tilraunum (44 prósent) í sigrinum á Njarðvík. Erik Olson, þjálfari FSu, er greinilega búinn að undirbúa sitt lið frábærlega fyrir tímabilið en liðið var svolítið óskrifað blað fyrir veturinn enda ekki með mörg "stór" nöfn innanborðs. Cristopher Caird og Christopher Anderson er öflugir leikmenn sem hafa báðir skorað 24 stig að meðaltali í Lengjubikarnum. Það hafa bara tveir leikmenn skorað fleiri stig í leik í keppninni til þessa eða þeir Tobin Carberry hjá Hetti (33,2) og Sherrod Nigel Wright hjá Snæfelli (26,5). FSu mætir Stjörnunni í undanúrslitunum á heimavelli sínum í Iðu á föstudagskvöldið og með sigri væru nýliðar í úrslitaleik Lengjubikarsins annað árið í röð. Tindastóll komst alla leið í úrslitaleikinn í fyrra og endaði síðan einnig í 2. sæti á eftir KR í bæði deildinni og í úrslitakeppninni.
Dominos-deild karla Mest lesið Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Marlena vann Bakgarðshlaupið: „Ég hljóp bara“ Sport Fær sér ís í heita pottinum eftir tæplega 250 kílómetra hlaup Sport Haaland kastaði boltanum í hnakkann á Gabriel eftir jöfnunarmark City Fótbolti Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Enski boltinn Keane segir Arteta að taka lyfin sín Enski boltinn Stig tekin af liði Ásdísar og félagið gæti hætt Fótbolti BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Enski boltinn Viðar Ari fjórbrotinn Fótbolti Sér eftir að hafa valið Val fram yfir KR Íslenski boltinn Fleiri fréttir Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Sjá meira