Silja Magg myndaði Eddu ásamt glæsilegu teymi hér á Íslandi fyrr í mánuðinum.
Edda Péturs var einungis 14 ára gömul þegar hún vann Ford-fyrirsætukeppnina. Hún hefur unnið með mörgum af frægustu nöfnum tískuheimsins og segir bransann hafa gengið í gegnum jákvæðar breytingar upp á síðkastið.
„Það hefur komið mér mest á óvart hvað ferillinn er orðinn langur. Ég hélt að hann myndi enda um tvítugt en svo var víst ekki,“ segir fyrirsætan sem gaf sér tíma í viðtal við Glamour sem má lesa í heild sinn í nýjasta tölublaðinu.
Til dæmis talar hún um fyrirsætuheiminn sem hefur tekið miklum breytingum frá því að hún hóf störf fyrir 17 árum síðan:
„Ég finn rosalegan mun, jákvæðan mun. Fyrirsætur hafa meiri stjórn á sínum ferli en áður og geta notað samfélagsmiðlana til að koma sér áfram. Eins er ekki jafn mikil pressa á að vera grannur eins og var hér áður fyrr. Nú eru stelpur í öllum stærðum að gera það gott, í auglýsingaherferðum, á síðum tímarita og á sýningarpöllunum, sem tíðkaðist ekki áður fyrr. Í augnablikinu er svokallað heilbrigt útlit í tísku sem er mjög jákvætt fyrir alla. Ég vona innilega að þessi þróun haldi áfram. Því meiri fjölbreytileiki, því betra.“
Ekki missa af nýjasta tölublaði Glamour sem er nú komið í allar helstu verslanir, stútfullt af fjölbreyttu efni!
Smelltu hér til að tryggja þér áskrift!
Glamour októberSmá bakvið tjöldin frá forsíðutöku nýjasta Glamour Iceland til að starta helginni almennilega - Edda Péturs <3 - Kemur í verslanir eftir helgi - ekki missa af! LINDEX Iceland
Posted by Glamour Iceland on 2. október 2015