Leaf með langdrægari rafhlöðu Finnur Thorlacius skrifar 7. október 2015 08:45 Nissan Leaf.
Nissan hefur tilkynnt að frá og með janúar á næsta ári verði rafmagnsbíllinn Nissan Leaf einnig í boði með nýrri 30kWh rafhlöðu í dýrustu útgáfu Nissan Leaf. Samkvæmt uppgefnum tölum framleiðanda er drægni hennar 245 km á einni hleðslu miðað við bestu aðstæður. Það er um 23% aukning frá núverandi 24kWh rafhlöðu sem verður áfram í boði í Leaf. Reynslan sýnir að kalt veðurfar minnkar drægni rafhlaða og er sú raunin á norðlægum slóðum þar sem Leaf er í boði, m.a. í Noregi og á Íslandi. Ólíklegt er því að nýja rafhlaðan skili 245 km drægni hér á landi þegar hún kemur á markað. Þó ber að hafa í huga að nýja 30kWh rafhlaðan var þróuð og hönnuð á grundvelli nýrrar og enn fullkomnari tækni þar sem notuð voru ný efni sem geymt geta mun meiri orku en núverandi rafhlaða.Minni drægni í kaldari löndumEkki er því ljóst á þessari stundu hver drægni nýju rafhlöðunnar verður á Íslandi. Með fyrirvara má þó reikna með að 30kWh rafhlaðan muni draga að minnsta kosti á bilinu 150 til 185 km sem svarar um það bil til vegalengdarinnar frá Reykjavík til Víkur í Mýrdal eða rúmlega vegalendarinnar til Staðarskála í Hrútafirði. Nissan er enn sem komið er eini bílaframleiðandi heims sem býður svo langdræga rafhlöðu í fjöldaframleiddum bíl í þessum stærðarflokki á heimsmarkaði. Framleiðandinn heldur því enn forskoti sínu á þessu sviði enda hefur enginn fjöldaframleiddur rafbíll náð viðlíka útbreiðslu og Leaf. Jafnframt er ljóst að með tilkomu nýju rafhlöðunnar verður Nissan Leaf enn ákjósanlegri valkostur fyrir bíleigendur sem nú aka bíl með bensín- eða dísilvél að sögn Paul Willcox, forstjóra Nissan í Evrópu.Sama notendavæna umhverfiðNýja 30kWh rafhlaðan er nákvæmlega jafnstór og núverandi 24kWh rafhlaða í Leaf en um 21 kg þyngri. Hleðslumöguleikar verða óbreyttir, hvort sem er við heimahús eða á hraðhleðslustöðvum, þar sem hægt verður að hlaða rafhlöðuna upp að 80% á 30 mínútum eins og núverandi 24kWh rafhlöðu. Nissan Leaf er framleiddur í verksmiðju Nissan í Sunderland í Bretlandi og hefst sala á stærri rafhlöðunni á Evrópumörkuðum í janúar. Nissan mun á næstu vikum tilkynna verð og útbúnað á einstökum mörkuðum.
Mest lesið Dullarfull brotlending nærri Area 51 Erlent Engan óraði fyrir framhaldinu Erlent „Það er sárt að þurfa að horfa á eftir þeim“ Innlent Spyr hvort aflífa þurfi sig vegna mjaðmaskipta Innlent Trump og „maðurinn með ljáinn“ hóta að greiða ekki laun Erlent Tóku farsíma af unglingum í Hafnarfirði og millifærðu af reikningum Innlent Lögregla lýsir eftir Aylin Innlent Stofna hreyfingu til undirbúnings íslenskum her Innlent Ekki hlutverk stjórnarandstöðunnar að halda uppi stemmingu Innlent Segir réttast að ráðherra dragi drögin í heild sinni til baka Innlent