Körfubolti

Haukur Helgi í góðum hópi leikmanna sem komið hafa heim til að hlaða batteríin

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Haukur Helgi Pálsson heldur á mynd frá því þegar KR-ingar unnu titilinn 2009 með þrjá leikmenn innanborðs sem komu heim til að hlaða batteríin, þá Helga Má Magnússon, Jakob Örn Sigurðarson og Jón Arnór Stefánsson.
Haukur Helgi Pálsson heldur á mynd frá því þegar KR-ingar unnu titilinn 2009 með þrjá leikmenn innanborðs sem komu heim til að hlaða batteríin, þá Helga Má Magnússon, Jakob Örn Sigurðarson og Jón Arnór Stefánsson. Vísir/Pjetur
Frétt vikunnar, mánaðarins og jafnvel ein af stærstu fréttum körfuboltaársins var að einn allra besti körfuboltamaður landsins, Haukur Helgi Pálsson, ætlar að spila heima í Domino's-deild karla í vetur. Njarðvíkingar voru hlutskarpastir í kapphlaupinu um að fá að njóta þjónustu þessa frábæra körfuboltamanns sem mætir í fyrsta sinn í grænu í kvöld þegar Njarðvík heimsækir KR í DHL-höllina.

Haukur gæti verið að fylgja í fótspor margra af bestu leikmönnum íslenska körfuboltalandsliðsins sem hafa komið heim og eytt hér tímabili þegar þeir áttu að vera upp á sitt besta.

Sjá einnig: Haukur Helgi: Gott að hafa pressu á sér

Hér getum við nefnt leikmenn eins og Helga Má Magnússon, Jón Arnór Stefánsson, Jakob Örn Sigurðarson, Loga Gunnarsson og Pavel Ermolinskij sem allir komu heim í eitt eða eitt og hálft tímabil áður en þeir fóru aftur út. Pavel og Logi entust þó ekki eins lengi og hinir tveir sem eru enn að gera það gott í evrópskum deildum.

Besta dæmisagan um vel heppnað tímabil heima er hjá þeim Jóni Arnóri og Jakobi sem komu báðir heim og spiluðu með KR veturinn 2008-09. Þeir hjálpuðu KR að verða Íslandsmeistari um vorið og komust síðan báðir að erlendis, Jakob í Svíþjóð en Jón Arnór á Spáni.

Verða ekki með í kvöld

Helgi Már Magnússon og Pavel Ermolinskij geta ekki verið með KR í kvöld vegna meiðsla en þeir eru tvö önnur góð dæmi um leikmenn sem hafa komið heim en farið síðan aftur út í atvinnumennsku.

Helgi Már kom heim fyrir tímabilið 2007-08 eftir að hafa spilað í Sviss og bandaríska háskólaboltanum. Hann var heima í tvö tímabil en komst síðan að í Svíþjóð.

Pavel kom heim eftir atvinnumennsku á Spáni og spilaði í eitt og hálft ár með KR. Líkt og Jón Arnór, Jakob og Helgi Már þá fór hann út sem Íslandsmeistari með KR. Helgi Már spilaði í þrjú ár í Svíþjóð og Pavel var þar í tvö ár áður en þeir sneru báðir heim.

Haukur Helgi með Loga Gunnarssyni.Mynd/Víkurfréttir
Fimmta góða dæmið er síðan Logi Gunnarsson, núverandi liðsfélagi Hauks Helga hjá Njarðvík. Logi kom og spilaði tímabilið 2008-09 með Njarðvík en fór síðan aftur út og lék sem atvinnumaður í fjögur tímabil í Frakklandi og Svíþjóð.

Sjá einnig: Friðrik Ingi: Haukur stórkostlegur

Haukur Helgi er ekki eini leikmaðurinn í Domino's-deildinni sem er kominn heim til að spila eftir ár í atvinnumennsku. Ægir Þór Steinarsson (KR) og Ragnar Nathanaelsson (Þór) voru líkt og Haukur með íslenska landsliðinu á Eurobasket og ættu að öllu eðlilegu að geta komist að erlendis í næstu framtíð.

Hvaða stöðu mun Haukur spila

Það bíða margir spenntir eftir því að sjá hvernig Haukur Helgi Pálsson passar inn í Njarðvíkurliðið og hvaða stöðu þjálfararnir, Friðrik Ingi Rúnarsson og Teitur Örlygsson, ætla að láta hann spila. Haukur er nefnilega það fjölhæfur leikmaður að hann getur nánast spilað allar stöður í deildinni hér heima. Fyrsti leikurinn í kvöld mun svara mörgum spurningum en auðvitað ekki nærri því öllum.

Skemmtilegri körfuboltakvöld

Það er kannski engin draumastaða fyrir íslenska landsliðið að þessir frábæru leikmenn séu ekki að spila í sterkari deild erlendis en á móti kemur að þetta er draumastaða fyrir íslenska körfuboltaáhugamenn sem fá að sjá þessa leikmenn í toppformi að spila í Domino's-deildinni.

Körfuboltakvöldin á Stöð 2 Sport verða örugglega full af tilþrifum frá Hauki, Ægi og Nat-vélinni í allan vetur. Fyrsta sýning er í kvöld þegar Ægir og Haukur mætast í Vesturbænum.

Aðrir leikmenn sem komu heimHelgi Már Magnússon

2007-2009

25-27 ára

Spilaði í tvö tímabil með KR-liðinu og varð Íslandsmeistari seinna árið. Lék síðan í þrjú tímabil í Svíþjóð með Solna Vikings, Uppsala Basket og 08 Stockholm HR áður en hann kom aftur heim.

Jón Arnór Stefánsson

2008-09

27 ára

Spilaði í eitt tímabil með KR-liðinu og varð Íslandsmeistari auk þess að fá bikarsilfur. Hefur síðan leikið í sjö tímabil á Spáni með CB Granada, CAI Zaragoza, Unicaja og Valencia Basket en hann spilar með því síðastnefnda í dag.

Logi Gunnarsson

2008-09

28 ára

Spilaði í eitt tímabil með Njarðvík en náði ekki að fara út sem Íslandsmeistari eins og 2002. Lék síðan í fjögur tímabil í Frakklandi og Svíþjóð með Saint-Étienne, Solna Vikings og Angers.

Jakob Örn Sigurðarson

2008-09

27 ára

Spilaði í eitt tímabil með KR-liðinu og varð Íslandsmeistari auk þess að fá bikarsilfur. Hefur síðan leikið í sjö tímabil í Svíþjóð, fyrstu sex með Sundsvall Dragons og svo með Borås Basket sem hann spilar með í dag.

Pavel Ermolinskij

2010-2011

23-24 ára

Spilaði í eitt og hálft tímabil með KR og fór út sem Íslands- og bikarmeistari sumarið 2011. Lék síðan í tvö tímabil í Svíþjóð með Sundsvall Dragons og Norrköping Dolphins áður en hann kom aftur heim.

Nýir leikmenn sem breyttu miklu fyrir Njarðvík
Danny Shouse 1980-81

Bandaríkjamaðurinn í fyrsta meistaraliði félagsins sem kom til Njarðvíkur frá Ármanni og skoraði 40,0 stig að meðaltali í leik þennan vetur. Lék líka með liðinu árið eftir þegar Njarðvík varð einnig Íslandsmeistari og var þá með 34,3 stig að meðaltali í leik.

Rondey Robinson 1990-91

Hjálpaði liðinu að vinna sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil í fjögur ár á sínu fyrsta tímabili af sex. Var með 28,6 stig og 16,8 fráköst að meðaltali á fyrsta tímabili og hjálpaði Njarðvík einnig að vinna titilinn 1994 og 1995.

Valur Ingimundarson 1993-94

Sneri til baka í Ljónagryfjuna eftir fimm tímabil á Króknum en hafði orðið sex sinnum meistari með Njarðvík 1981-87. Valur varð spilandi þjálfari Njarðvíkurliðsins sem fór frá því að enda í 6. sæti og komast ekki í úrslitakeppnina vorið 1993 í það að vinna Íslandsmeistaratitilinn tvö ár í röð.

Teitur Örlygsson Íslandsmeistari Njarðvík körfubolti
Teitur Örlygsson 1997-98

Kom aftur heim eftir ár í atvinnumennsku í Grikklandi og Njarðvík varð meistari á endurkomuárinu þrátt fyrir að hafa bara endað í fjórða sæti í deildarkeppninni. Njarðvík toppaði á hárréttum tíma og Teitur átti meðal annars sitt besta stoðsendingatímabil á ferlinum.

Njarðvíkingar Íslandsmeistarar í körfubolta 2001. Brenton Birmi Njarðvíkingar Íslandsmeistarar í körfubolta 2001. Brenton Birmingham fyrirliði liðsins með bikarinn og fána sem var gerður sérstaklega fyrir tilefnið.
Brenton Birmingham 2000-01

Samdi aftur við Njarðvík (var einnig í Njarðvík 1998-99) eftir að Njarðvíkingar misstu af honum til Grindavíkur veturinn á undan. Átti magnað tímabil en var aldrei betri en þegar liðið tryggði sér titilinn á Króknum og Brenton var með fjórfalda tvennu (28 stig, 11 stoðsendingar, 10 fráköst og 10 stolna bolta). Varð síðan einnig Íslandsmeistari með Njarðvík 2002 og 2006.

Skallagrímur - Njarðvík Iceland Express deild karla úrslit Njarðvík Íslandsmeistari með sigri Jeb Ivey Halldór Rúnar Karlsson
Jeb Ivey 2005-06

Kom til Njarðvíkur eftir að spilað í tvö ár á Íslandi, fyrst með KFÍ (2003-04) og svo með Fjölni (2004-05). Hjálpaði Njarðvík að vinna sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil í fjögur ár. Var með 24,2 stig og 5,9 stoðsendingar að meðtali í leik í deildinni og skoraði 30 stig þegar Njarðvík tryggði sér titilinn í Borgarnesi. Fór með Njarðvík í lokaúrslitin árið eftir.

Stefan Bonneau 2014-15

Leysti Dustin Salisbery af á miðju tímabili og sló í gegn. Bonneau var einn tilþrifapakki frá fyrsta leik og var með 36,9 stig og 5,1 stoðsendingu að meðaltali í leik. Njarðvík var næstum því búið að slá verðandi Íslandsmeistara KR út í mögnuðum tvíframlengdum oddaleik í undanúrslitunum þar sem Bonneau skoraði 52 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×