Sami síminn í ólíkum stærðum 29. október 2015 17:00 Í nýju glæsilegu Z5 línunni frá Sony eru þrír snjallsímar sem eru í grunninn sami síminn en í þremur mismunandi stærðum. MYND/VILHELM
KYNNING: Nú á haustdögum er Sony að gefa út glæsilega Z5 línu sína, þrjá snjallsíma sem eru í grunninn sami síminn en í þremur mismunandi stærðum. Að geta valið sér snjallsíma eftir stærð er skemmtilegur eiginleiki þegar kemur að vali á símtæki sem fer vel í hendi eða vasa án þess að þurfa að færa sig niður í gæðum, að sögn Guðna Kristjánssonar, eiganda og framkvæmdastjóra Actus ehf. „Allir símarnir í Z5 línunni eru búnir 23 megapixla myndavél, 5.1 megapixla myndavél að framan, 32 GB geymsluplássi sem er stækkanlegt upp í 200 GB, fingrafaraskanna, vatnsvörn og allt að 2 daga rafhlöðuendingu ásamt Android 5.1 stýrikerfinu.“ Fyrsti síminn úr línunni sem kom í verslanir í haust var Sony Z5 Compact sem er litli bróðirinn í hópnum, að sögn Guðna. „Hann fer virkilega vel í hendi, er lítill og þægilegur og í þeirri stærð sem allir geta notað. Síminn er með 4,6" skjá þannig að litlir lófar og stórar hendur ráða léttilega við allar aðgerðir á skjánum. Litagleðin er allsráðandi í Z5 Compact sem kemur í klassískum svörtum eða hvítum, gulum og rauðsanseruðum lit.“ Miðjutækið er Sony Z5 síminn sem kemur í 5,2" skjástærð. „Sá sími er örlítið stærri en fellur vel í lófann. Smáir fingur finna mögulega fyrir því að aðgerðir með annarri hendi verða flóknari og oftar en ekki er betra að nota báðar hendur. Hönnun og útlit símans er einstök. Í álramma með möttu gleri að framan kemur hann fallega gulllitaður, svartur eða dökkgrænsanseraður. Virkilega vandaður og fallegur sími.“Vatnsvarðir símar Stóri bróðirinn er svo Sony Z5 Premium sem trónir yfir öðrum með 5,5" skjá með einstakri 4K upplausn. „Um er að ræða fyrsta símum sinnar tegundar í heiminum. Glæsilegasta tækið af þeim öllum er Z5 Premium í gulli eða silfri og skartar spegli á bakhliðinni.“Allir símar í Z5 línunni eru búnir 23 megapixla myndavél, 32 GB geymsluplássi sem er stækkanlegt upp í 200 GB, vatnsvörn og allt að 2 daga rafhlöðuendingu.Nýjustu snjallsímarnir frá Sony Mobile hafa komið vatnsvarðir og vottaðir með staðli fyrir vatns- og rykvörn. „Að vera með vatnsvarinn snjallsíma eru þægindi umfram önnur þegar kemur að því að nota símann í aðstæðum sem hafa til þessa ekki verið í boði. Það þarf oft ekki mikið til að valda rakaskemmdum og er jafnvel nóg að svara í símann í rigningu, fara út að hlaupa með símann í vasanum, missa hann í snjóskafl eða meðhöndla hann með blautum fingrum.“Frábær myndavél Með sögu Sony á bakinu hefur þeim tekist að setja á markað snjallsíma hlaðinn gæðum og góðum lausnum sem þeir byggja á áratuga reynslu sinni, að sögn Guðna. „Þar kemur myndavélin sterk inn og í Sony Z5 er hún framúrskarandi með 23 megapixla upplausn og fangar myndirnar í gegnum 24 mm víðlinsu sem skilar birtunni vel inn á myndflöguna.“ Myndavélin er búin ofurhröðum sjálfvirkum fókusstilli sem nær að festa skarpa mynd á 0,03 sekúndum. „Það er því sama hvar eða hvernig myndin er tekin, hún á alltaf að vera í fókus. Hvort sem viðfangsefnið er á fleygiferð eða sjálfur myndatökumaðurinn.“ Guðni segir upplausn í myndavélum alltaf vera að aukast. Með því að hafa 23 megapixla upplausn og Exmon RS myndflöguna frá Sony er hægt að ná allt að fimmföldum stafrænum aðdrætti (e. zoom) án þess að tapa miklum gæðum. „Það þýðir að það er hægt að nálgast viðfangsefni úr fjarlægð en samt halda myndinni skarpri og nákvæmri.“ Það hefur verið þróun meðal snjallsímaframleiðenda að fækka tökkum á tækjunum. „Minímalisminn getur verið góður og höfðað til margra. Þetta veit Sony sem hefur þó haldið sig við myndavélarhnappinn sem gefur alltaf góða tilfinningu þegar það á að festa efni á mynd. Að geta opnað myndavélina með því að smella á hnappinn, þó síminn sé læstur, er gríðarlegur kostur og getur flýtt mikið fyrir. Og þegar mynd er tekin sendir myndavélarhnappurinn titrandi skilaboð upp í fingurinn. Þessir litlu hlutir sem gefa þessa áþreifanlegu tilfinningu fyrir því að maður er með alvöru myndavél í höndunum.“
Mest lesið Hagkerfið allt í hættu Viðskipti innlent Boðar ódýrara súkkulaði í sumar vegna hruns á kakóverði Neytendur Pepsi víkur fyrir Coca-Cola í vélum Icelandair Neytendur 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Viðskipti innlent Sönnuðu ekki fullyrðingar um lækningamátt og fá háa sekt Neytendur Átökin geri baráttuna við verðbólguna enn erfiðari Viðskipti innlent Ráku blaðamann vegna falskra gervigreindartilvitnana Viðskipti erlent Talsverðar hækkanir á heimsmarkarðsverði olíu Viðskipti erlent Mun leiða Fab Lab Reykjavík Viðskipti innlent Í hvað eru peningarnir þínir að fara? Samstarf Fleiri fréttir Í hvað eru peningarnir þínir að fara? Icewear Garn opnar í Kringlunni Bíllinn sem rúllaði upp vetrardrægniprófi NAF Íþróttaálfurinn reynir við Íslandsmet á fjölskylduhátíð BL Sætur borgarbíll þar til kíkt er í skottið Bílanaust flytur í sérhannaðar höfuðstöðvar að Álfabakka 4 G-vítamín eru litlu skrefin sem breyta miklu Nýjar áskriftarleiðir að Heimavörn bylting á öryggismarkaði Hreingerningafyrirtæki brýtur blað í fræðslumálum Hjálpar skiptastjórum að greina eignaundanskot Bestu íslensku vörumerkin 2025: viðurkenningarhátíð í Hörpu Margborgar sig að gera við stjörnu í rúðu: Carglass hefur opnað á Íslandi Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Sjá meira